Tuesday, September 21, 2004

Pælingar

Já, þetta er ekki auðvelt. Eins og einhver sagði þá er ég gamaldags kristin kona... ég held ég sé gamaldags ekki bara sem kristin kona heldur bara almennt. En... maður verður bara að taka eitt skref í einu. Þetta kemur... sýna smá þolinmæði. Vandamálið (fyrir þau ykkar sem lesa ekki hugsanir) er sem sagt að meika það í netheiminum. Nú er ég komin með eigin heimasíðu og bíð spennt eftir því að geta gert hana flottari. Ég er svona manneskja sem hefur aldrei nennt að æfa sig í neinu, ég vil bara kunna það. Þetta getur reynst erfitt þar sem ég get líka verið fullkomnunarsinni og vil þ.v. kunna það sem ég vil kunna mjög vel! Bla, bla, bla..

Ég tók þá heilbrigðu og skynsömu ákvörðun í dag að segja mig úr tveimur áföngum. Ætli ég hafi ekki loksins þurft að horfast í augu við þá staðreynd að ég get bara hreinlega ekki gert allt! Þó ég sé náttúrlega alveg rosalega fjölhæf og allt það... Anyway, ákvað að reyna að blogga í dag. Á samt eftir að sættast við tölvuna og komast að samkomulagi hvernig ég á að geta sett inn mynd af mér. Það vill þannig til að mín aðferð virðist ekki vera nógu góð fyrir... ekki kannski tölvuna, heldur frekar bloggforritið... eða heitir það kannski netsíða eða spjallþráður... eða...?!? Sem sagt, þetta er allt að koma og ég brosi bara breitt á meðan og anda djúpt.

Já, um þetta snúast hugsanir mínar í dag. Vonandi verða þær ekki alltaf í þessum dúr... eða moll..

0 Comments:

Post a Comment

<< Home