Saturday, October 03, 2009

Ánægjulegur laugardagur

Við áttum okkur yndislegan dag í gær. Heimilið var bara í þokkalegu ástandi miðað við undanfarið og ég var búin að planleggja allar máltíðir fyrirfram, aldrei þessu vant. Maður nýtur hvíldardagsins eitthvað svo miklu betur þegar allt þetta er afstaðið.

Kirkjuferðin var líka gefandi, maður hlakkar alltaf til að hitta fólkið sem er orðið að nánum vinum manns og sem styður mann alveg sama hvað.

Eftir kirkju var okkur boðið heim til prestsins í kaffimat, þannig að við náðum að fara heim og borða raclettemat og leggja okkur áður en við héldum af stað í þessari líka þvílíkri helli dembu. Þar sem ég var búin að baka brownies, kaupa rjóma og jarðaber, þá tókum við það náttúrlega bara með okkur, prestinum og börnunum hans 3 plús vikonu til mikillar ánægju. Þar var rætt um margt og mikið, en það sem stendur uppúr er að við stofnuðum biblíulestrarhóp. Yess!! Þetta er eitthvað sem okkur Kidda höfum langað að gera í 2 ár! Nú er bara að bjóða fleirum með og hittast svo næsta miðvikudag :)

Tuesday, September 29, 2009

Haustið er komið

Við fórum í smá bíltúr í morgun og þá tók ég eftir því, mér til mikillar gleði að haustlitirnir eru farnir að láta sjá sig. Kuldinn lýgur heldur ekki, bara 12 gráður og ískaldur vindurinn. En, þetta er samt notalegt á ákveðinn hátt. Kertaljósatíminn er að ganga í garð. Hver árstíð hefur sinn sjarm:)

Annars er ég að vonast til að við getum farið í stutta heimsókn til Íslands í lok mánaðarins, svona í tilefni sextugs afmælis mömmu. Ferðin átti náttúrlega að vera leyndarmál, en mamma komst að sjálfsögðu að því...:) Þar sem ég er í veikindaleyfi gæti þetta reynst okkur erfitt, þar sem ég má ekki missa af neinum fundum eða meðhöndlun o.s.frv. Annars missi ég tekjurnar...! Erum samt búin að gera eins konar samkomulag við kommúnuna um að ef ekkert er planlagt viku fyrir ferðina, þá förum við. Annars fara Kiddi og Gunnar Jakob án mín.

We´ll see...

Sunday, February 08, 2009

4 ára trúlofunarafmæli

Já, við eigum hvorki meira né minna en 4 ára trúlofunarafmæli í dag, 8. febrúar. Það var á þessum degi árið 2005 sem Kiddi fór með mig í óvissuferð sem hófst við Seltjarnarnesvitann. Hann hafði fengið lykil að honum lánaðan og hafði stráð rósum og rósablöðum og kertum á hvert einasta þrep í vitanum, alla leiðina upp. Þegar við vorum komin efst upp í vitann, út á svalirnar, bað hann mín á hnjánum í sólarlaginu með útsýni yfir hafið. Svo fór hann með mig út að borða í Perlunni þar sem við snæddum 5 rétta máltíð. Það var einmitt svona food and fun vika, þannig að kokkurinn var einhver voða merkilegur útlendingur, frakki held ég.

Kvöldið átti upprunalega að enda í óperunni á sýningunni Tosca, en þar sem það voru svo margir réttir í Perlunni, komum við 5 mín of seint og þá var ekki hægt að komast inn. Þetta gerði daginn bara þeim mun eftirminnilegri, því það er náttúrlega bara fyndið að klúðra svona líka fullkomnu plani :) Við notuðum í staðinn bara tímann til að fara milli húsa og segja fjölskyldunni frá, sem hefði annars þurft að bíða þar til næsta dags.

Hringurinn var sérhannaður af Kidda. Þar hafið þið það. Gaman að hugsa tilbaka til þessa dásamlega dags.

Í tilefni af þessu, þá ætlar maðurinn minn að elda önd fyrir okkur í kvöldmat. Ekki amarlegt það!! :)

Wednesday, January 14, 2009

Miðvikudagur.

Það kom að því að ég ákvað að blogga, þrátt fyrir að hafa eiginlega ákveðið að hætta nú þessari endalausu tjáningarsemi (?!).

Smá yfirlit:

Það var gott að vera á Íslandi, þó tilfinningarnar séu dáltið upp og niður eftir atvikum. Sumt fólk var skrýtið að hitta eftir langa pásu, því þó maður hafi þekkt fólk í langan tíma, þá þekkist maður bara ekki á sama hátt lengur. Fólk breytist á þeim tíma sem maður missti af hvort öðru, ég líka og kannski mest. Enda hefur bara heilmikið gengið á á stuttum tíma. Einu sinni átti ég nánast engan nema sjálfa mig til að hugsa um og núna hef ég nánast engan tíma fyrir sjálfa mig, nema nokkrar mínútur inn á milli. En, svona er lífið og maður mótast eftir aðstæðum.

Annars var mjög gott að fá að vera heima hjá mömmu og pabba og tengdó. Góður matur og góður félagsskapur á hverjum degi. Þó svo að mömmu fannst ég vera allt of mikið að, þá var þetta heilmikil afslöppun fyrir okkur öll. Svo mikil að það tekur verulega á að byrja í vinnunni aftur, enda komin með nýtt barn í pössun, og þrifin og frágangurinn eftir vinnudaginn eru mér nánast ómöguleg vegna þreytu. Þá er gott að eiga góðan eiginmann. Ég veit nú ekki hvar ég væri án hans.

Er að reyna eftir bestu getu að koma í veg fyrir að fara aftur í bakinu, en verkrnir leyna sér ekki. Hlakka til að byrja í Pilates í kvöld :) Jejj!!

Þetta er aldeilis þunglamalegt blogg, enda ástæðan fyrir því að ég er að íhuga að hætta og einbeita mér betur að síðu Gunnars Jakobs. Sjáum til.

Tuesday, December 16, 2008

2

Tveir dagar eftir. Koma svo: burt með þetta kvef!!!

Monday, December 15, 2008

3

Þrír dagar í heimkomu. Brjálað að gera og litli með gubbupest í gær. Allir í kvefi og veseni, nei, nei, ekkert svo miklu veseni :)
Þarf samt að gera helling!!!

Sunday, December 14, 2008

4 dagar í heimkomu:)