Ég er komin í mynd
Er ekki gaman að fylgjast með framförunum hjá mér??? Nú tókst mér loksins að setja inn mynd af mér, þetta er alveg makalaust! Ég er sko búin að reyna þetta mjög oft, en tókst það sem sagt ekki fyrr en núna.
Svo er ég að vonast til að tölvan mín læknist bráðum, en hún er búin að vera lasin síðan í sumar og mér aldrei tekist að finna hvers eðlis flensan hennar var. Já, en hann Kiddi ætlar að redda þessu eins og svo mörgu öðru :) Ég las einhversstaðar að hann sé af þeirri tegund fólks sem er frá Mars og að þar sé fólki eðlilegt að koma með lausnir við öllum vandamálum, sem er yfirleitt jákvætt, alla vega í þessu tilfelli.
Já, svo er skólinn byrjaður aftur. Hraðbankinn át kortið mitt og kvartaði jafnframt undan því að kortið mitt væri orðið myglað. Held það hafi byrjað að úldna í desember, svei mér þá. Held ég sé farin að kalka, þar sem ég mundi ekki eftir að ég hefði átt að ná í nýa kortið fyrir mjög löngu síðan. Það eru því miður fleiri vísbendingar um öldrunarmerki hjá mér, því ég steingleymdi stjórnarfundi sem ég átti að mæta á s.l. viku. Fattaði það um leið og ég lagðist í rúmið um kvöldið. Það er ekkert smá leiðinlegt þegar svoleiðis gerist, bæði a.þ.a. ég sveik hina í stjórninni og líka af því að ég missti greinilega af mjög spennandi og jafnframt mikilvægum fundi. En... nú er ég loksins búin að kaupa mér dagbók í fílófaxið mitt sem ég fékk í útskriftargjöf. Þarna sjáið þið: heilinn var ekki kominn í lag ennþá...
Jæja, en Guð er góður, því ég er nokkuð viss um að hann hafi meira að segja reynt að minna mig á þennan fund, ég var nefnilega með einhvern óróa í maganum þetta kvöld, fattaði bara ekki af hverju. Well, well!