Ákvað að nýta tímann snemma morguns áður en barnið vaknar til að blogga smá. Ástæðan fyrir því að ég er ekki líka sofandi er að það er einhver rafvirki búinn að hringja dyrabjöllunni tvisvar hjá mér í morgun. Í fyrra skiptið, þegar ég var loksins komin fram, var búið að hleypa honum inn, en ég náði honum í seinna skipið. Hann var pínu vandræðalegur þar sem ég kom fram á sloppnum, þannig að ég býst ekki við hringingu frá honum aftur. Annars eru vinnu menn úti um allt að berja allt sem hægt er að berja, að því er virðist. Alla vega dynur allt húsið og ekki nokkur svefnfriður. Sem betur fer sefur Gunnar í gegnum allan háfaðann.
Nú eru rétt tæpar þrjár vikur þangað til að við flytjum heim til mömmu og pabba þar sem við verðum í tvær vikur. Mikið lifandi skelfing líður tíminn hratt. Ég hefði nú haldið að tíminn myndi líða hægt þar sem ég er alltaf heima, en svo er ekki. Það eru bara fimm vikur þangað til að við flytjum út. Vá!! Það er ekkert smá stutt þangað til.