Sunday, July 30, 2006

Brúðkaup nr. 3

Whew! Þá er það búið. Brúðkaup Guðrúnar og Péturs er afstaðið og allir sælir og glaðir (held ég alla vega). Okkur tónlistarfólkinu tókst að flytja okkar án þess að gera einhvern major skandal. Nei, nei, þetta var rosalega gaman, en það er samt ótrúlega mikil ábyrgð sem hvílir á manni, því ef maður klikkar, (þ.e.a.s. í athöfninni) eyðileggur maður daginn fyrir brúðhjónin.

Það er allt öðruvísi að performera í veislunni, því það er miklu meira afslappað. Það er líka svo gaman að syngja svona gömul Hollywood eða djass lög. Ef þið vitið um einhvern sem vantar tónlistarfólk í brúðkaup, þá bara látið þið mig vita :) Hvort sem það er í athöfnina eða í veislunni. Er nefnilega í mjög góðri þjálfun eftir sumarið.

Wednesday, July 26, 2006

Morgunstund með Ólöfu :)

Jæja, tími á persónulegt blogg. Stundum er bara ekki margt að skrifa um og þá er svo þægilegt að geta bara skellt inn einhverju sem einhver gáfaður eða fyndinn hefur skrifað nú þegar. Það er náttúrulega búið að skrifa svo ótal margt að það getur verið óþarfi stundum að bæta við það eða umorða það.

En, ég sit hérna með kaffibollan góða og er bara að dóla mér eitthvað. Ákvað að taka mér bara frí þessa vikuna. Það er hvort eð er svo margt annað sem þarf að gerast auk þess sem kennarinn minn er í fríi og getur ekki aðstoðað mig í bili. Sem sagt, margar góðar ástæður til að taka smá sumarfrí.

Gaman að segja frá því (án þess þó að gorta mig af því) að ég er u.þ.b. að klára fyrsta stigs bókina í celló. Ágætis árangur á einu sumri með 5 klst kennslu. Æ, hverjum er ekki sama þó ég sé ánægð. Þetta er mitt eigið persónulega hobbí sem ég hef afskaplega gaman af. Þarf samt að kaupa efni sem heitir Rosen svo það ískri ekki eins mikið þegar ég spila. Dáltið mikið sársaukafullt fyrir eyrun. Það er ekki eins og það sé ekki oft nógu falskt þegar ég spila, þó þetta bætist ekki ofan á í þokkabót.

Annars er það merkilega í fréttum að ég var að eignast frænda s.l. sunnudag. Guðbjörg Hrönn og Gústi maðurinn hennar eignuðust strák sem var 16 merkur. Enn eitt kraftaverkið í heiminum í dag innan um allar hörmungarnar.

Kæru vinir, þangað til næst: lifið heil en ekki hálf!

Sunday, July 23, 2006

Cynical Meanings

Cigarette: A pinch of tobacco rolled in paper with fire at one end and a fool on the other.

Divorce: Future tense of marriage.

Lecture: An art of transferring information from the notes of the Lecturer to the notes of the students without passing through "the minds of either."

Conference: The confusion of one man multiplied by the number present.

Compromise: The art of dividing a cake in such a way that everybody believes he got the biggest piece.

Tears: The hydraulic force by which masculine will-power is defeated by feminine water power...

Dictionary: A place where success comes before work.

Conference Room: A place where everybody talks, nobody listens and everybody disagrees later on.

Classic: A book which people praise, but do not read.

Smile: A curve that can set a lot of things straight.

Office: A place where you can relax after your strenuous home life.

Yawn: The only time some married men ever get to open their mouth.

Wednesday, July 19, 2006

Eitthvað til að hugsa um

Sometimes we are inclined to class those who are once-and-a-half-witted with the half-witted, because we appreciate only a third part of their wit.

-Henry David Thoreau, Walden-

Tuesday, July 18, 2006

The Bible according to Kids

The following statements about the Bible were written by children and have not been retouched or corrected (i.e., bad spelling has been left in.)

- In the first book of the Bible, Guinesses, God got tired of creating the world, so he took the Sabbath off.

- Adam and Eve were created from an apple tree.

- Noah's wife was called Joan of Ark because Noah built the ark, which the animals came to in pears.

- Lot's wife was a pillar of salt by day, but a ball of fire by night.

- The Jews were a proud people and throughout history they had trouble with unsympathetic Genitals.

- Samson was a strong man who let himself be led astray by a Jezebel like Delilah.

- Samson slew the Philistines with the axe of the Apostles.

- Moses led the Hebrews to the Red Sea, where they made unleavened bread, which is bread without any ingredients.

- The Egyptians were all drowned in the dessert.

- Afterwards, Moses went up to Mount Cyanide to find the ten commendments.

- The first commandment was when Eve told Adam to eat the apple.

- The seventh commandment is "Thou shalt not admit adultery".

- Moses died before he ever reached Canada.

Have a nice day


Monday, July 17, 2006

Fjölskyldan

Ég er ekki alveg að standa við orðin mín um að skrifa á hverjum degi, en hverjum er ekki sama. Lífið er of stutt til að hafa áhyggjur af svona hlutum, þó það sé mikilvægt að standa við orð sín.

Við áttum afskaplega skemmtilega helgi. Laugardaginn eyddum við með tengdafjölskyldunni af því að tengdaforeldrarnir mínir eru u.þ.b. að fara að yfirgefa landið í ár. Eftir að hin systkini Kidda voru farin skelltum við okkur ásamt gamla settinu upp í Vindáshlíð í heimsókn til Heiðrúnu systur, en þau höfðu aldrei komið þangað áður, þó þau hafa verið að skoða Kjósina í leit að sumarbústaða landi. Þeim þótti þetta afskaplega skemmtilegt og við fórum bæði í apabrúnna og aparóluna, auk þess sem ég fór með þau að Pokafoss í grenjandi rigningu. Geðveikt stuð :)

Eftir að hafa þrifið bæði hér heima og á Holtaveginum fórum við í heimsókn til minna foreldra og grilluðum og höfðum það notalegt. Spjölluðum um Bandaríkjaferðina okkar og aðra skemmtilega hluti. Þetta er allt að smella saman.

Það er svo mikilvægt að eyða tíma með fjölskyldunni, því það er enginn sem stendur manni jafn nær og hún.

Tuesday, July 11, 2006

Brúðkaup nr. 2

Þá er annað brúðkaupið afstaðið. Allt mjög fallegt, nema hugsanlega inngöngu og útgöngumarsarnir í kirkjunni. Man, oh, man! Skulum ekki tala meira um það...! Held samt að það hefði hjálpað ef orgelleikarinn hefði tekið eins og einn eða tvo orgeltíma fyrst...

Nema hvað, þetta er alveg ágætis sumar þó að það sé rigning í dag. Þá er bara best að vera inni í hlýjunni og hafa það notalegt.

Kiddi minn fær borgað fyrir að spila fótbolta og leika sér við krakkana í Hjallakirkju. Orðin brúnn og er allur að verða svaka fit og sætur :) Geðveikt gaman!

Thanks for writing that sweet comment Marisa, I really appreciate that. Maybe I should just blog in English since you guys seem to be my most devoted fans :) It's only 3 weeks until we come to see you guys. I was watching MTV the other day when I was in gym (yes, I DO watch sinful TV stations like that sometimes! (just kidding)), anyways, one of the reasons I kept on watching it was that they were doing a live show in San Diego and man, I can't wait to join you in the sun.

That was my little spark to let you know I'm alive. Actually my problem had something to do with lack of space on my computer. I really seriously need a new one!!!

Bless, bless.

Sunday, July 02, 2006

Brúðkaup nr. 1 í sumar.

Jæja, þá er fyrsta brúðkaupið af fjórum afstaðið og Ingunn frænka gift kona. Til hamingju Ingunn! Þetta er bara ágætis nossari sem hún náði sér í. Mjög mjúkur maður. Grét mjög mikið. Ég komst að því aftur að Norðmenn eru miklu persónulegri en við hörðu Íslendingar. Verð að viðurkenna að það er góður kostur.

Blogg out.