Wednesday, July 26, 2006

Morgunstund með Ólöfu :)

Jæja, tími á persónulegt blogg. Stundum er bara ekki margt að skrifa um og þá er svo þægilegt að geta bara skellt inn einhverju sem einhver gáfaður eða fyndinn hefur skrifað nú þegar. Það er náttúrulega búið að skrifa svo ótal margt að það getur verið óþarfi stundum að bæta við það eða umorða það.

En, ég sit hérna með kaffibollan góða og er bara að dóla mér eitthvað. Ákvað að taka mér bara frí þessa vikuna. Það er hvort eð er svo margt annað sem þarf að gerast auk þess sem kennarinn minn er í fríi og getur ekki aðstoðað mig í bili. Sem sagt, margar góðar ástæður til að taka smá sumarfrí.

Gaman að segja frá því (án þess þó að gorta mig af því) að ég er u.þ.b. að klára fyrsta stigs bókina í celló. Ágætis árangur á einu sumri með 5 klst kennslu. Æ, hverjum er ekki sama þó ég sé ánægð. Þetta er mitt eigið persónulega hobbí sem ég hef afskaplega gaman af. Þarf samt að kaupa efni sem heitir Rosen svo það ískri ekki eins mikið þegar ég spila. Dáltið mikið sársaukafullt fyrir eyrun. Það er ekki eins og það sé ekki oft nógu falskt þegar ég spila, þó þetta bætist ekki ofan á í þokkabót.

Annars er það merkilega í fréttum að ég var að eignast frænda s.l. sunnudag. Guðbjörg Hrönn og Gústi maðurinn hennar eignuðust strák sem var 16 merkur. Enn eitt kraftaverkið í heiminum í dag innan um allar hörmungarnar.

Kæru vinir, þangað til næst: lifið heil en ekki hálf!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home