Wednesday, June 21, 2006

Mikið er lífið skrýtið. Ég vinn á frábærum vinnustað (Suðurhlíðarskóli fyrir ykkur sem vissuð það ekki), en málið er bara að ég vinn í grunnskóla við að kenna hin ýmsu fög, þó ég sé náttúrlega bara menntuð til að kenna ensku í efri bekkjum grunnskóla og í menntó. Ég er búin að lofa mér allt næsta ár, því ég er mjög ánægð þarna, þó ég hef verið að hugsa um það undanfarið hve þægilegt það væri að kenna í menntó og fá alltaf lengri frí á sumrin og hugsanlega um jólin líka, þó vinnan yrði strembnari. Í dag fæ ég síðan póst frá kennaranum sem hefur umsjón með lokaritgerðinni minni þar sem hún "býður" mér (er alla vega milliliður) vinnu í Fjölbrautarskólanum á Suðurnesjum.

Man!! Þetta hefði verið svo spennandi, og einmitt það sem ég hef verið að hugsa um, nema það að ég hugsaði að það væri líklega sniðugt að halda bara áfram þar sem ég er núna, því við förum jú út eftir ár.

Oh, well. Svona er það. Maður á að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur, því það er líka gott, bara öðruvísi gott.

Nóg um það. Það sem er gleðilegt er að ég er byrjuð að læra á celló...:) Geðveikt gaman!! Það fær samt enginn að hlusta, alla vega ekki fyrr en eftir að ég er farin að spila fullkomlega...;)

He, he...

4 Comments:

Blogger Jón Magnús said...

Væri ekki gott fyrir þig að fá kennslu í framhaldsskóla á ferilsskrána? Ég held að málið sé bara að beila á Suðrhlíðaskóla og herja á FS.

Við hlökkum til að heyra þig spila á cellóinn! Myndir þú kannski vilja spila eins og 2-3 lög í brúðkaupinu okkar? =)

21 June, 2006 09:15  
Blogger Ólöf Inger said...

In your dreams babe!

Hvað varðar skólan, þá hefur þetta líka með loforð og eitthvað sem kallast hrein samviska að gera. Ég er líka með svo frábæra nemendur. Ef hið síðast nefnda væri ekki máli, væri ekki spurning að ég myndi beila.

21 June, 2006 09:59  
Blogger Dagný said...

hæhæ ég vildi bara kvitta fyrir mig!

Gaman að þú sért byrjuð að blogga aftur ;) aldrei leiðinlegt að bæta fleiri bloggurum á bloggrúntinn hehe

22 June, 2006 01:31  
Blogger Jón Magnús said...

Dear Ólöf Inger,
We woke up this morning for our daily cup of Ólöf and were dismayed that there was not a new update...have we done something wrong? Please come back to us soon...we love you and miss you...

Love,
Jón and Marisa

22 June, 2006 08:43  

Post a Comment

<< Home