Wednesday, May 25, 2005

Vinna o.s.frv

Jæja, þá er maður byrjaður að vinna á fullu og bara allt á fullu!! Jahérnahér, ég sem hélt ég væri komin í "sumarfrí". Jæja, ég sef alla veg mjög vel, enda dauðþreytt þegar ég loksins fer að sofa. Nú styttist í Danmerkurferðina hjá okkur Kidda og fjölskyldu hans. Við förum 11. júní og verðum í tvær vikur. Spennandi, ég hef nefnilega aldrei verið lengra en átta tíma í Danmerku, og alltaf í millilendingu. Tíminn bókstaflega flýgur og við að rembast við að vinna í boðskortunum fyrir brúðkaupið. Ég sem ætlaði að forðast allt vesen, þetta er þónokkuð föndur, en þau eru samt mjög flott, það finnst mér alla vega. Hinir útvöldu fá að sjá þau innan skamms ;) Ég er að stelast til að skrifa, þó ég sé ennþá að vinna. Bara þrjár mínútur eftir. Hey, ég skrifa kannski meira síðar. Þarf að ganga frá. CU :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home