Monday, April 25, 2005

Hljóð

Jæja, ætli það sé ekki tími til kominn að fara að láta heyra í sér! Sumarið er komið og bleiku skýin eru á sínum stað :) Ég hlakka ekkert smá til að ljúka þessari önn svo ég geti farið að leika mér aðeins meira. Mín skoðun er sú að það sé mjög stór hluti af tilgangi lífsins. Ef maður getur ekki leikið sér verður maður gamall fyrir lífstíð og hvað er svona gaman við það?

Mig langar líka að koma því á framfæri að ég er rosalega glöð yfir því hvað fólk er fúst til að hjálpa okkur við allan undirbúning fyrir brúðkaupið. Ég er ekkert smá hissa samt. Það er eins og öðrum finnist þetta jafn spennandi og mér :) Annað hvort hefur fólk mjög gaman af brúðkaupum eða það er fegið því að ég sé loksins að fara að ganga út. Ég veit að mamma er á síðari skoðuninni.

Anyway, ég bið alla vel að lifa.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home