Tuesday, November 30, 2004

Aðventa

Mm, mm, mm!! Það er komin aðventa, getiði ýmindað ykkur?! Ég er að reyna að hugsa ekki of mikið um öll verkefnin og prófin sem bíða mín. Í staðinn tók ég að mér að kenna eina og hálfa viku í forföllum, sem er gaman, nema ég var veik í gær. Hvað gerist þegar forfallakennarinn er veikur? Ja, þá fer allt í steik, eins og mér skilst að gerðist í gær. Í fyrsta lagi urðu næstum slagsmál meðal nemenda. Alla vega heiftarleg rifrildi. Þau voru að föndra og skreyta, rosa jólalegt og notlegt og svo bara fór allt í háaloft. Æðislegt!! Ergo, tveir nemendur mættu ekki í dag.

Að öllu öðru leyti er ég ekkert smá ánægð með að aðventan sé komin. Loksins get ég hlustað á jólatónlist. Pabbi keypti Wow jóladisk og hann er algjört æði. Mæli með honum.

Jæja, bless í bili :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home