Sumarplön
Talandi um sumarið, það eru eflaust sumir forvitnir um plön og slíkt, þ.e.a.s. ef það er einhver sem yfirhöfuð les þetta blogg. Ég er sem sagt að fara að gifta mig, sem er mjög skemmtilegt, en áður en það gerist ætla ég til Danmerkur í júní ásamt mínum heittelskaða og fjölskyldu hans að kynnast tengdafjölskylduættinni. Ætli það sé ekki til að fá mig samþykkta?! Hver veit :) Síðan er brúðkaupið þann 6. ágúst n.k. og verður haldið í Aðventkirkjunni hérna í Reykjavík, eða í kirkjunni hans Kidda. Veislan verður síðan haldin á mínum heimaslóðum á Holtaveginum, enda er það með glæsilegri sölum á höfuðborgarsvæðinu.
Annars er Guð ekkert smá góður. Kiddi, sem hafði hugsað sér að vinna bara allar helgar til að eiga efni á þessu öllu, fékk glæsilegt bænasvar þegar hann fékk stöðuhækkun hérna um daginn. Síðan fékk ég vinnuna sem ég óskaði mér helst, en ég mun vinna á skrifstofu KFUM/K og SÍK. Sumarið mitt er jú svo slitið að ég átti eiginlega ekki von á að fá þessa stöðu. Praise, praise :)
Sumrinu lýkur síðan með brúðkaupsferð til Krítar og ég hlakka ekkert smá til.
Þá vitiði það kæru lesendur. Vona að ykkur líði betur eftir að hafa fengið þessar upplýsingar. Mér finnst alla vega gaman að segja ykkur frá þeim :-)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home