Thursday, May 05, 2005

Baráttan fyrir SÍK-ið

Ég fór á SÍK samkomu í gær, var reyndar að sjá um hana alfarið, já, og kaffið líka. Sem betur fer er Guð góður og hjálpaði mér að kippa í fólk til að aðstoða mig og til að bjarga mér frá því að fara yfir um. Enn og aftur varð ég vitni að því að þegar hlutirnir eru í Guðs höndum þá ganga málin einfaldlega svo miklu betur en ef maður reynir eitthvað sjálfur. Þetta var s.s. mjög góð samkoma. Við Heiðrún, Kiddi, Steinar og Hanna yngdum verulega upp á liðið og skemmtum okkur konunglega. Hanna, takk fyrir að sjá um kaffið fyrir mig og þið hin: takk fyrir að vilja standa með mér!

Þið hin sem misstu af þessu getið bara mætt næst, en þá er fjáröflunarsamkoma og ég á víst að syngja eitthvað. Það væri gaman ef við gætum lækkað aðeins meðalaldurinn. Ekki væri verra ef við myndum gera það líka oftar. Ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á því að hressa aðeins upp á SÍK samkomurnar og yngja þar aðeins upp, þá getum við stofnað svona klúbb eða hóp sem hefur þetta að markmiði sínu :) ég er alla vega að hugsa um að vera duglegri að mæta og þið getið joinað mig :)

Annars er þetta afskaplega góður dagur. Við Heiðrún og Agla Marta ætlum að syngja í fimmtugsafmæli Péturs Þorsteins, en hann er með eitthvað æði fyrir láta allar tölur smella og samræmast og ætlar að halda upp á það 05.05.2005 kl. fimm mínútur í fimm, en hann er einmitt fæddur 1955. Jahér...

Jæja, ætli maður þurfi ekki að fara að læra eitthvað. Ákvað að sofa út svona einu sinni og er bara ekkert búin að gera ennþá. Hneyksli, hneyksli!! En, þar til næst...:) Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home