Jæja, ég er búin að setjast tvisvar og logga mig inn með það að markmiði að blogga eitthvað, en...ég hef bara ekki oft e-ð að segja.
Í dag get ég sagt að ég kláraði vinnuna mína sem aðstoðarmaður í HÍ. Þetta var mjög lærdómsríkt og ég komst að því að vinnubrögðin við yfirferð á prófum, alla vega í Enskudeildinni, eru alveg rosalega nákvæm. Það er farið yfir hvert próf amk. þrisvar! Jahér!! Er síðan að velta fyrir mér hvar ég ætti eða fæ að vinna næsta vetur. Sem betur fer veit Guð það:) Þá þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því.
Annars á ég bara eitt verkefni eftir og þá er ég komin í sumarfrí, hlakka geðveikt til. Vonandi næ ég að klára það fyrir helgi.
Annars var Guð að blessa mig með smá pening. Þ.e.a.s. ég fékk loksins mjög svo seinkaða útborgun. Nú get ég farið í klippingu, sem er gaman :)
Ég var minnt á það á mánudagskvöldið og aftur í dag að það er Guð sem opnar og lokar dyrum í lífi manns eftir því sem er best fyrir mann. Þegar hann hefur opnað getur enginn lokað og þegar hann hefur lokað getur enginn opnað. Vá! Þá er gott að treysta Honum og vera tilbúin til að gera Hans vilja, Hann umbunar fyrir það. Það stendur svart á hvítu í Op. 3. Stundum fær maður stuttan fyrirvara og stundum lengri, málið er bara að vera tilbúinn til að bregðast við því sem Hann segir. Það er ekkert smá. Ég hef verið að velta fyrir mér hvort ég sé alltaf reiðubúin til að hlaupa á eftir honum eða hvort ég sé svona besservisser sem svarar Honum með því að koma með "betri" tillögu. Hm...pæling.
Jæja, er að fara að syngja í SÍK og þarf að hafa mig til. Heyrumst :)

2 Comments:
En skemmtilegt! Ég dró einmitt þetta vers sem þú ert að tala um áður en ég fór að sofa í gær! Skemmtileg tilviljun... eða kannski er það bara engin tilviljun ;)
Ég myndi halda að einhver væri að reyna að ná athygli ;) Gaman að fá komment!
Post a Comment
<< Home