Ég var að uppgötva að ein vinkona mín vissi ekki að ég væri trúlofuð, jahér, hvers konar vinkona er ég eiginlega!! Greinilega alltaf að hringja í hana...!
Mikið var gaman að hitta fólk úr KSF á s.l. samkomu. Mér fannst eins og ég hafi ekki hitt þetta fólk í ár og öld! Það er svo sem rétt, mér finnst bara svo skrýtið að hitta ksfinga svona sjaldan, ég hef alltaf verið ein af þeim sem hefur alltaf mætt, svona allt eða ekkert manneskja. En, það er eins og með margt annað, mér finnst ég standa á ákveðnum tímamótum í lífinu og mér finnst Guð vera að draga mig úr ýmsum kringumstæðum sem ég hef verið í í langan tíma. Það er eins og verið sé að rýmka til um mig. Þetta er spennandi, en skrýtið líka.
Svo eru ýmsar pælingar í sambandi við vinnu næsta vetur sem ég er að biðja Guð um að hjálpa mér að átta mig á og ákveða mig í. Þið megið endilega biðja fyrir því.
En það er frábært að geta treyst Guði, þó maður skilji ekki alltaf það sem er í gangi.
Peace!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home