Sunday, June 18, 2006

Jahér, það svakalegt hvað þessi síða mín er vinsæl!! Greinilega margir sem lesa hana. Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að hætta að blogga, en það væri líklegast sniðugt að halda síðunni, því það styttist í það að maður flytji til útlanda í einhvern tíma. Kannski fæ ég einhverja aðdáendur þá...jejj, gaman, gaman.

Talandi um frægð, ég hef hitt þó nokkra undanfarið sem ég þekki ekki neitt, en sem segjast hafa hlustað á Kangadiskinn og finnst hann greinilega áhugaverður. Ég hef þá tekið þátt í einhverju sem fólk mun muna eftir :)

Við Kiddi erum að passa höll pabba og mömmu um þessar mundir þar sem þau eru í útlöndum. Já, mér finnst þetta sko vera höll miðað við frímerkið okkar þar sem maður getur næstum því hreyft sig. Hlakka til að verða stór, þá ætla ég að verða rík og eignast það stórt húsnæði að ég geti boðið fleiri en tveimur gestum í einu.

Talandi um gesti, við vorum einmitt með nokkra góða í heimsókn hérna í Grafarvoginum í gærkvöldi. Við höfðum boðið Heiðrúnu systur og Hildu vinkonu (og fyrrverandi samkennara), en eftir sem við hittum fleiri niðrí bæ, fór að fjölga í hópnum, og af því að fólk er orðið svo heimakært hjá okkur í Grafarvoginum barst þetta bara út og það komu enn fleiri. Svona á þetta líka að vera.

Jæja, þetta var mitt lífsmark í bili.
Pís át.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home