Friday, June 10, 2005

Danmerkurferð

Sæl öll.
Á morgun mun ég þurfa að vakna allt of snemma til að ná fluginu til Danmerkur sem fer kl 07:30. Við fljúgum til Köben og gistum í tvær nætur einhversstaðar nálægt á 5 stjarna gistiheimili sem er við strönd. Held að planið sé að fara í tívolí á sunnudeginum. Síðan förum við til Jótlands þar sem ég fæ að kynnast tengdafjölskyldu minni (fjölskyldu Sonju) og slaka á. Við ætlum að skoða giftingarhringa og eitthvað fleira skemmtilegt :)

Gaman að segja frá því að ég er orðin fyrirsæta fyrir það ágæta tímarit Bjarma. Ég verð s.s. á forsíðu næsta tölublaðs sem kemur út einhvern tímann eftir helgi. Þá getið þið haft eitthvað til að hugga ykkur við á meðan ég er úti :) Annars veit ég nú ekkert hvað greinin fjallar um sem myndirnar af mér munu fylgja. En, þetta snýst allt um traust... og svo auðvitað um frægðina líka...

Ástin mín var svo sætur að hann kom til mín í vinnuna með hádegismat. Hrikalega getur hann verið sætur. Ég verð nú bara að segja ykkur frá einu sem gerðist í vikunni. Hérna um daginn þurfti ég að fara að hitta yfirmann minn fyrir næsta haust til að ég gæti undirbúið mig fyrir kennsluna. Var ekki búin þar fyrr en kl 19 og ætlaði að fara í strætó. Ég burðaðist með þungan poka að strætóskýlinu fyrir utan Versló til að geta farið niðrá Holtaveginn. Þar uppgötvaði ég að strætóinn færi ekki fyrr en eftir hálftíma, þannig að ég ákvað að hringja í Kidda til að gá hvort hann væri einhvers staðar nálægt. Hann kom og sótti mig og vildi endilega kaupa handa mér kvöldmat svona áður en ég færi að þrífa. Síðan fór hann með mig á Holtaveginn. Ég held ég geti ekki alveg lýst fyrir hversu þreytt ég var, en ég var s.s. allt of þreytt sökum of lítils svefns síðasta mánuðinn og mikils álags. Alla vega, þegar við vorum komin þá tilkynnti hann mér að hann væri búinn að skúra alla skrifstofuna. Ég hélt í alvörunni að hann væri að stríða mér, en nei, hann hafði þá skrúrað allar skrifstofur, nema þær sem bara ég er með lykil að, þurrka allt ryk, vaska upp og tæmt allar ruslafötur. Hann var meira að segja búinn að skúra uppi á lofti!! Já, ég hef sjaldan verið jafn glöð á þá. Ég var næstum farin að skæla mér létti svo mikið.

Já, ég held ég sé búinn að ná mér í draumaprins, ég á alla vega erfitt með að trúa því hvernig Kiddi er.

Nóg af þessu, vona að ykkur leiðist ekki þegar ég skrifa um ástina. Ég er bara alveg hrikalega ástfangin!

Eigið góðar vikur framundan, við "sjáumst" eftir tvær.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home