Tuesday, May 29, 2007

40 vikur og 6 dagar

Já... ég gæti alveg lamið einhvern. Það er svo gaman að fara í mæðraskoðun og heyra að blóðþrýstingurinn sé hár. "Já, svo ertu með svo marga samdrætti. Finnurðu ekkert fyrir þeim? Er ekkert að gerast?" Ef ég fyndi fyrir þeim, væri ég þá ekki löngu farin upp á fæðingardeild og búin að fæða?!!

Svo fer ég upp á meðgöngudeild þar sem blóðþrýstingurinn er alltaf góður. Þar eru samdrættirnir mældir og mér sagt að þeir séu mjög þéttir og ég spurð "finnurðu ekkert fyrir þeim?" Auðvitað finn ég fyrir þeim, en þeir eru ekki vondir, því þá væri ég væntanlega komin með hríðir og farin að fæða, segir það sig ekki bara sjálft!!!

Svo skrifa þau hjá sér: "er þreytt." Hverjum hjálpar það að þau skrifa það niður ef þau gera ekkert í því? Það hjálpar mér ekkert alla vega!!! Þau munu ekkert gera í því hvort eð er.

Já, þetta er gaman. Núna er bumban komin í efstu línu á línuritinu. S.s. fyrir ofan meðaltal. Það er skemmtilegt, svona í lokin. Samt er barnið ekkert svakalega stórt. Er greinilega með sundlaug.

Þá vitiði hvernig lífið er hjá mér. Bara svona ef þið skylduð hafa áhuga. Alltaf gaman að vera jákvæður.

Friday, May 25, 2007

40 vikur og 2 dagar

Nei, ég er ekki búin að eiga ennþá, fyrir þau ykkar sem voruð að velta því fyrir ykkur. 23. er liðinn og ekkert að gerast ennþá. En ég get lofað ykkur því að það verður komið í síðasta lagi 6. júní, því þá verður eitthvað gert í málunum ef málin gerast ekki af sjálfu sér.

Annars er það í fréttum að við erum búin að festa kaup á hús í Danmerku sem við fáum afhent 1. ágúst, þannig að nú vitum við nákvæmlega hvert við erum að fara. Þetta er lítið og sætt hús sem er með útistofu og garð og alles, þannig að við erum rosalega ánægð með það. Það er líka gestaherbergi í húsinu, fyrir þau ykkar sem eigið leið þar um á næstu árum... hint, hint. Já, við verðum þarna sennilega í alla vega 5 ár, þannig að það er eins gott að einhver komi í heimsókn!!!

Þar sem ég hef ákveðið að taka mér smá frí frá ritgerðarsmíð (maður verður auðveldlega þunglyndur á vinnu sem ætlar aldrei að taka enda) fór í ég í bókasafnsferð um daginn og fékk mér bara skemmtilegar bækur mér til mikillar tilbreytingar. Þetta er alveg dásamlegt og kærkomin tilbreyting frá sjónvarpsglápi, þó svo maður hættir að sjálfsögðu ekki alfarið þeim vana. Það er kannski ágætt að vera með svona auðgleðjanlega sál eins og ég. Það þarf ekki nema te, góða bók, sjónvarp og einstaka heimsókn til að gleðja mig.

Wednesday, May 16, 2007

God the Artist

A Sunday School teacher began her lesson with a question. "Boys and girls, what do we know about God?"

A hand shot up in the air. "He is an artist!" said the kindergarten boy.

"Really?! How do you know?" the teacher asked.

"You know - 'Our Father, who does art in Heaven..."

Friday, May 11, 2007

Júróvisjón hugleiðingar

Jæja, þá er það komið á hreint: Júróvisjón hefur greinilega ekkert með tónlist að gera, ekki það að þessi keppni hafi nokkurn tímann gert það svona þannig lagað, en það sannast á því að fólk eins og Dana International getur unnið í keppninni, en lagið hans/hennar/þess var nú ekki upp á marga fiska.

Nú er líka pólitíkin algjörlega búin að ná yfirhöndinni og þá er lítið land eins og Ísland í vondum málum, því við erum svo fámenn og eigum ekkert svakalega fjölmennar þjóðir sem nágranna. Þegar málin eru farin að snúast um að kjósa nágrannann í stað besta lagsins þá er þetta náttúrlega bara sorglegt. Mér sýnist nú hinir samkynhneigðu ekki einu sinni eiga séns í þessa pólitík þar sem Danmörk komst ekki heldur áfram og þá er nú mikið sagt.

Já, ég á bara ekki til orð yfir þessu rugli. Þegar menn á borð við Eirík Rauða komast ekki áfram, þá hlýtur nú margt að vera að. Það ættu náttúrlega augljóslega að vera einhverjir dómarar sem hafa eitthvað vit á tónlist og framkomu að dæma þetta, ekki bara almenningur sem kýs fallegasta fésið eða einhvert land sem það þarf að sýna hollustu. Jahér... Jahér!!! Já, ég segi nú ekki meir!!

Tuesday, May 08, 2007

Biðin langa

Ég er búin að komast að því að ein besta leið Guðs til að kenna manni þolinmæði er að gera mann óléttan. Þessi prófraun hefur mestu virkni ef alls konar kvillar og meiðsl eru blönduð með, svona til að maður hafi eitthvað til að dreifa huganum frá því sem annars hefði getað látið mann gleyma því við og við að maður væri eins og tímasprengja sem gæti sprungið (í bókstaflegri merkingu) hvenær sem er. Helsta lexía mín á þessari meðgöngu er sú að það að vera óléttur og að vera óléttur er bara ekki það sama.

Annars er ekki margt annað í fréttum. Jú, jú, það er svosem heilmargt í fréttum, en bara ekkert sem er endilega eitthvað sem maður bloggar um. Ég á í "haltu mér, slepptu mér" sambandi við sjónvarpið þessa dagana, ég er nefnilega löngu orðin leið á því að horfa á sjónvarp, en þar sem mikill tími fer í að liggja hjá mér, þá er ekki margt annað hægt að gera. Ég gæti lesið, en þar sem flestar af þeim bókum sem ég á sem ég hef ekki lesið eru aðeins og djúpar fyrir minn einbeitingarskort, þá nenni ég ekki mikið af því heldur. Og þið sem hélduð að ég væri löt...

Stefni að öðru leyti að því að klára mastersritgerðina góðu í þessari viku. Já, mér hefur leiðst það mikið að ég hef í raun og veru farið að vinna að henni. Kraftaverkin gerast enn. Já, það er ekki öll von úti.

Segi þetta gott í bili, þar sem ég ætla að halda áfram að sinna þéttu dagskránni minni.