Tuesday, May 29, 2007

40 vikur og 6 dagar

Já... ég gæti alveg lamið einhvern. Það er svo gaman að fara í mæðraskoðun og heyra að blóðþrýstingurinn sé hár. "Já, svo ertu með svo marga samdrætti. Finnurðu ekkert fyrir þeim? Er ekkert að gerast?" Ef ég fyndi fyrir þeim, væri ég þá ekki löngu farin upp á fæðingardeild og búin að fæða?!!

Svo fer ég upp á meðgöngudeild þar sem blóðþrýstingurinn er alltaf góður. Þar eru samdrættirnir mældir og mér sagt að þeir séu mjög þéttir og ég spurð "finnurðu ekkert fyrir þeim?" Auðvitað finn ég fyrir þeim, en þeir eru ekki vondir, því þá væri ég væntanlega komin með hríðir og farin að fæða, segir það sig ekki bara sjálft!!!

Svo skrifa þau hjá sér: "er þreytt." Hverjum hjálpar það að þau skrifa það niður ef þau gera ekkert í því? Það hjálpar mér ekkert alla vega!!! Þau munu ekkert gera í því hvort eð er.

Já, þetta er gaman. Núna er bumban komin í efstu línu á línuritinu. S.s. fyrir ofan meðaltal. Það er skemmtilegt, svona í lokin. Samt er barnið ekkert svakalega stórt. Er greinilega með sundlaug.

Þá vitiði hvernig lífið er hjá mér. Bara svona ef þið skylduð hafa áhuga. Alltaf gaman að vera jákvæður.

6 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Gangi þér vel ;)
Kv.Heiðdís og Stefán Bogi

29 May, 2007 13:59  
Anonymous Anonymous said...

Æææ... ekki skemmtilegt að heyra. Þetta er líka akkurat tíminn sem maður gerir ekkert nema BÍÐA og BÍÐA meira. (ekki það að ég þurfti ekki að bíða svona lengi...)
EN þetta hlýtur að fara að koma, ég trúi ekki öðru! Vona bara að þér gangi rosa vel þegar barnið ákveður að mæta í heiminn ;)

30 May, 2007 04:23  
Anonymous Anonymous said...

híhí..þú ert alveg frábær penni;) þetta er svolítið grátbroslegt..ég vona að þetta fari að koma hjá þér!
Mig langaði líka að segja þér frá nokkrum myndum frá surprise afmælinu hans Óskars sem ég setti inn á síðuna okkar:)

söknum þín!
kv.Eva Dögg

30 May, 2007 06:34  
Blogger Jón Magnús said...

hold out one more day and then it will be born on my birthday!! YES!

...i mean...oh man, tht sucks, i am ssssoooo sorry.

30 May, 2007 07:19  
Blogger Jón Magnús said...

hold out one more day and then it will be born on my birthday!! YES!

30 May, 2007 07:19  
Anonymous Anonymous said...

Ætlum að vera fyrst hér til að óska ykkur til hamingju með lítinn prins ;)
Hlökkum til að hitta ykkur ;)
Kv. Jóhanna og Fannar Smári

02 June, 2007 09:59  

Post a Comment

<< Home