Tuesday, March 27, 2007

27. mars. 32 vikur and counting...

Fyrir þá sem hefðu haft einhvern áhuga á því, þá erum við hættar við tónleikana, að minnsta kosti ég. Þetta var nú ekki mjög raunhæft miðað við hvernig ég er á þessum tíma dags, og bara svona yfirleitt. Var ekki alveg til í að syngja mína fyrstu tónleika án mikillar orku og eiginlega bara hálfsyfjuð eins og ég er flesta daga. Nei, þetta verður bara að bíða betri tíma.

Eins og er er Gospelkórinn að taka upp auglýsingu fyrir Húsasmiðjuna. Ég var með í hljóðupptökunni, en þar sem myndaupptakan gæti dregist allt upp í 6 klst ákvað ég að það væri nú betra að geta farið í vinnuna, því ef ég hefði farið hefði ég pottþétt orðið veik á morgun. Var í afmæli hjá afa í gærkvöldi sem gerði það að verkum að ég hef verið eins og draugur í vinnunni í dag. Fékk nýjan nemanda í prufudag hjá mér og henni fannst ég nú samnt frábær kennari. Hvað get ég sagt annað en að Guð hlýtur að vera með mér þegar ég vinn.

Annars er það í fréttum að Ragnhildur Steinunn (sú sem er í Kastljósinu) kenndi okkur í bumbusundinu í gær. Hún er víst að útskrifast sem sjúkraþjálfari í vor og hefur s.s. verið að fylgjast með kennslunni undanfarna tíma. Alltaf gaman að stæra sig á tengsl manns við fræga fólkið...:)

Anyway, meira blaður seinna.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home