Milljónir sem hverfa á nokkrum mínútum
Við hjónakornin fórum ásamt vinum og vandamönnum á hina árlegu brennu í Mosfellsbæ s.l. laugardagskvöld. Við vorum nýkomin þangað þegar hin magnaða flugeldasýning Björgunarsveitarmanna hófst með þvílíkum látum. Það voru allir sammála um það sem þar voru að þetta var mjög glæsileg sýning og vel heppnuð. Það er hins vegar mín einlæga skoðun að svona sýningar ættu að vera á gamlárskvöldi líka, því þá væri fólk ekki í hættu vegna brjálæði nágrannanna og eigin flugelda og tertna. Maður myndi ekki þurfa að vera alveg að kafna úr reyk sem kemur hvort eð er í veg fyrir að maður sjái flugeldanna sem eru í stuttri fjarlægð frá manni. Þetta myndi líka vera mun glæsilegri fyrir vikið. Hvað finnst ykkur?
Annars vorum við með opið hús í nýju íbúðinni þar sem við vorum nýbúin að koma okkur fyrir. Ferlega munar miklu að hafa 10 fermetra í viðbót. Annars eru allir velkomnir til okkar, svo lengi sem við erum heima og það er fyrir kl. 22 á kvöldin. Kiddi er farinn að þjálfa fólk kl. 6 og 7 á morgnanna, þannig að við þurfum víst að fara snemma að sofa.
Annars eru byrjaðar samkomur kl 17 á sunnudögum í Kristniboðssalnum. Þarna er hópur fólks, aðallega fólk sem hefur komist til trúar í gegnum Alfa námskeiðin þar sem pabbi (og örugglega fleiri) hefur verið að kenna. Þau vissu ekki hvað þau ættu af sér að gera þegar pabbi hætti í KFUM, þannig að þau þrýstu á hann að fá að lesa í Biblíunni og fræðast meira í heimahúsum undir hans handleiðslu. Þessi hópur hefur síðan bætt við sig fólk sem ekkert samfélag hefur og þau hafa nú ákveðið að hittast bæði sem smáhópar og síðan allir á sunnudögum á samkomum. Sumir vilja meina að pabbi sé að kljúfa KFUM/K, ég veit ekki hvort ég myndi taka svo djúpt til í árinni... alla vega er það nú ekki viljandi frá hans hendi. Hann átti alla vega ekki frumkvæðið í neinu af þessu. Kannski er þetta samt gott ef það er eins og e.k. "wake up call" fyrir félögin ágætu, þar sem þeirra stefna er farinn að verða allt önnur en "í gamla daga". Það er nú það: sitt sýnist hverjum.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home