Sunnudagsmorgunn
Góðan daginn gott fólk. Ég sit hér á sunnudagsmorgni heima hjá foreldrum mínum með tebollann góða mér við hönd. Gamla settið er farið í kirkju og maðurinn sofandi. Við fengum þá skrýtnu hugmynd að fara í helgarfrí til foreldra minna. Ástæðan er að það er einhver grunsamlega vond lykt heima hjá okkur sem ég finn en ekki Kiddi. Hm! Þetta er alla vega svakalega gaman og notalegt.
Dagurinn í gær var afskaplega skemmtilegur þar sem ég byrjaði í Gospelkór Reykjavíkur aftur. Mér fannst Guð vera að leyfa mér að fara aftur í hann eftir tveggja ára hlé sem ég hef notað til að kynnast Aðventkirkjunni og bara fengið meiri tíma með manninum mínum. En já, þetta var mjög gaman, því það er svo gott samfélag þarna og góð stemning um leið og það reynir á mann tónlistarlega séð.
Guð er góður. Allt hefur sinn tíma hjá honum, það er ekki spurning.
Lifið heil.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home