Jæja aftur, það er greinilega einhver sem les síðuna mína. Takk til allra sem skrifuðu og óskuðu mér til hamingju. Mér þótti mjög vænt um það. Sérstaklega frá þeim sem ég hef ekki heyrt í lengi.
Dagurinn í dag var afskaplega merkilegur og skemmtilegur að því leyti að ég fór í brúðkaup frænku minnar sem var að gifta sig í þriðja skiptið. Hef nú aldrei farið í brúðkaup til neins sem hefur gift sig svona oft. Það sem var gleðilegt við þetta brúðkaup var að hún var að giftast fyrsta manninum sínum aftur, s.s. þeim manni sem hún á þrjár dætur með. Þetta sýnir manni að í þessum heimi, þar sem svo margir skilja, er enn von. Athöfnin var haldin í Friðrikskapellu, sem mér þótti sérstaklega vænt um þar sem við munum ekki geta verið þar á Þorláksmessukvöld í ár. Við verðum í Danmerku hjá tengdó. Ég er nú svo óreynd að þetta verða fyrstu jólin sem ég verð ekki með fjölskyldunni minni um jólin. Þetta verður samt spennandi. Ég bara vona að við förum í messu á aðfangadagskvöld...
Á morgun verður líka merkisdagur, því þá munu Marisa, kona Jónsa, og amma hennar, sem er í heimsókn frá Bandaríkjunum, halda Thanksgiving fyrir okkur. Mamma er búin að bjóða fullt af ættingjum, þannig að þetta verður víst risaveisla. Ég hef einu sinni áður upplifað Thanksgiving að hætti Bandaríkjamanna, en þá var ég bara 10 ára, þannig að ég man ekki mikið eftir því.
Jæja, blogoff í bili.

1 Comments:
Hæ og takk fyrir síðast!
Þú lítur ekkert smá vel út :) Gangi þér sem allra best :)
Post a Comment
<< Home