Barnahugleiðingar
Jæja, þá eru 31 vika og 3 dagar liðnir af þessari meðgöngu og fer brátt að styttast í annan endann. Allt virðist líta vel út ennþá, sem er gott og barnið farið að vera frekar fyrirferðarmikið. Stundum líður mér eins og það sé að hlaupa í hringi og gera hinar ýmsu fimleikaæfingar. Það er nokkuð ljóst alla vega að þetta barn verður látið þjálfa einhverja íþrótt, hver sem hún verður.
Annars erum við rétt aðeins byrjuð að endurskipuleggja dótið okkar sem er inni í geymslu, svo það sé bara tilbúið þegar að flutningunum kemur í sumar. Erum að reyna að koma í veg fyrir að Kiddi lendi í þessu aleinn aftur. Ég er alltaf jafn hissa á því hvað við eigum mikið dót. Sem betur fer eigum við ekki mikið af húsgögnum og slíku, þannig að það verður allt skilið eftir.
Annars fór hluti af deginum í gær í að kaupa eitthvað af þeim fjölmörgu atriðum sem eru á lista hjá okkur yfir því sem vantar áður en barnið kemur í heiminn. Það er ekki hægt að segja annað en að manni finnst það hálf skrýtið að vera að versla bossakrem og barnaolíu o.þ.h. án þess að "eiga" barn. Það er líka alltaf jafn erfitt að fara að velja einhver föt án þess að vita kynið á barninu, þó þetta sé allt orðið mun raunverulegra en áður. Keyptum því bara nokkra hvíta sokka og sokkabuxur.
Jæja, nóg af þessu í bili. Heyrumst.

1 Comments:
Sko... það er gaman að kaupa barnadót, svo njóttu þess bara!!annars þurfa þessi kríli voða lítið af fötum svona til að byrja með... sokkabuxur, samfellur og léttar peysur og svo eitt eða tvö fleeceteppi... þá líður þeim bara voða vel!!
Hlökkum annars til að hitta þig :) Kveðja, Jóhanna og Kúturinn
Post a Comment
<< Home