Monday, January 22, 2007

Þreyta og flopp

Var að lesa bloggið hennar Jóhönnu og verð að viðurkenna ein helstu mistök síðustu viku: ég gleymdi bóndadeginum. Ég sem ætlaði SVO að muna eftir því. Það er búið að vera eitthvað svo svakalega mikið að gerast undanfarna viku, enda var mér skipað að vera heima í dag vegna ofþreytu. Það getur verið ágætt þegar manni er "skipað" svona fyrir stundum, annars myndi ég halda áfram þangað til ég dytti niður, sem er ekkert endilega mjög gott.

Annars vorum við á mjög góðri samkomu í gær í kristniboðssalnum, fyrir utan það þegar ég söng ásamt Kidda og Jón Magnús spilaði undir, ha, ha. Haldiði að ég hafi ekki klúðrað laginu :) Mjög gaman. Anyway, það reddaðist. Það er gott að maður tekur ekki sjálfan sig of alvarlega. Hefði þetta gerst fyrir nokkrum árum síðan hefði ég verið alveg að deyja.

Jæja, alltaf gaman að halda sér á mottunni. Mæli með mottunni gott fólk, viskuorð dagsins.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hehe.. skil þig alveg að gleyma þessu. Ég var bara heppin að vera með útvarpið í gangi allan daginn og þar var varla talað um annað en Bóndadaginn!!! En það má alveg redda þessu með óvæntum bóndadegi... t.d. bara næsta föstudag eða þarnæsta og koma kallinum á óvart þá! Ég ætla einmitt að gera það, hafa svona "annan í bóndadegi" þar sem kallinn minn kom ekki heim fyrr en um 23:00 á Bóndadagskvöldið, svo það var kannski ágætt að það var ekki undirbúið mjög mikið sem þá hefði klúðrast ;)
En heyrðu... hittingur kona góð!! Var að frétta að þú værir komin með stærri kúlu en ég... Verð bara að sjá það ...hehe!!! (mér finnst mín nefnilega alveg nógu stór!!!) Mæli með stelpukvöldi e-rt kvöldið sem hentar vel ;) (í næstu viku væri tilvalið... er þaggi??)

23 January, 2007 02:42  
Blogger Ólöf Inger said...

Góð hugmynd, þar að planleggja eitthvað sniðugt og rómantískt.

Skulum endilega hittast í næstu viku. Hvað segirðu um mánudagskvöldið? Þá er ég alltaf einmanna, því þá er Kiddi upptekinn. Hvað segirðu um það?

23 January, 2007 05:42  
Anonymous Anonymous said...

Hæ! Ég segi að við þurfum líka að fara að hittast. Langt síðan síðast!
Kv, Guðrún B

25 January, 2007 02:11  
Blogger Ólöf Inger said...

Geðveikt gaman. Líst vel á það. Verð mjög einmanna helgina 3.-4. feb, því þá er Kiddi í London. Annars máttu endilega koma með uppástungu.

25 January, 2007 08:34  

Post a Comment

<< Home