Monday, March 12, 2007

Titill

Þá er maður stiginn upp úr veikindunum leiðinlegu, en öll síðasta vika fór í það að vera veikur heima. Eins og það getur hljómað skemmtilegt, þá er það bara alveg svakalega leiðinlegt til lengdar. Sem betur fer á ég góða frænku sem á fékk allt Friends safnið í jólagjöf, þannig að hún hefur lánað mér hluta úr því. Þetta er allt saman mjög uppbyggilegt eða þannig. Þetta er alla vega hin besta afþeying.

Annars er það í fréttum að ég og Heiðrún systir erum að fara að halda tónleika bráðum. Sennilega laugardaginn 31. mars kl. 17. Þetta á samt eftir að koma betur í ljós. Erum nefnilega búnar að fresta þessu tvisvar. Ein samstarfskonan hennar er listakona og mun sýna málverkin sín á tónleikunum, en við eigum það sameiginlegt að hafa aldrei verið með okkar eigin tónleika og sýningu áður, þannig að þetta er spennandi. Vonandi mætið þið sem flest.

Er annars að reyna að klára að fylla út umsókn fyrir fæðingarorlof. Þetta er bara hið flóknasta mál, þótt ótrúlegt megi virðast. Þetta er alla vega ekki eins augljóst og maður hefði haldið í fyrstu. Ég á mér líka þann leiðinlega vana að fresta öllu sem mér finnst erfitt, þannig að þetta er búið að vera svona mánuð eða meira í bígerð. Jahér!

Anyway, er bara að bíða niðrí vinnu eftir því að verða sótt. Er að hugsa um að horfa á meira Friends þegar ég kem heim. Ég þarf hvort eð er að leggjast, og af hverju ekki horfa á eitthvað skemmtilegt á meðan? Ef þið haldið að ég sé orðinn fíkill, þá eruð þið langt eftir á, því það er nefnilega mjög langt síðan það gerðist.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home