Gamla kerlingin, barnapíurnar og gjafir...:)
Þá heldur lífið áfram sinn vanagang, nema nú er komin upp sú staða að líkaminn er farinn að segja til sín. Ákveðnar hreyfingar eru ekki í boði og fyrrum kvillar í kjölfar slyssins góða (eða frekar vonda) í haust eru komnir aftur. Jejj... gaman, gaman. Maður veit aldrei hvað gerist. Ég er sem sagt farin að fá smá þef af því hvernig það er að eldast, en þá er það oft þannig (skilst mér, ekki það að ég hafi mikla reynslu af því) að það er ýmislegt sem maður hættir að geta gert. Ég þarf því að einbeita mér af því að gera ekki of mikið, sérstaklega hvað varðar álagsvinnu sem krefst þess að líkaminn sé notaður á ákveðinn hátt, s.s. t.d. skúringar. Það er hreyfing sem krefst þess að maður snúi líkamanum einhvernveginn til frá hlið til hlið, eða .. það er alla vega álag á einni hlið í einu, s.s skökk hreyfing.
Ég er viss um að ykkur finnist þetta allt afskaplega áhugavert... heh .. já.. hm.
Annars erum við alltaf í barnapíuleik þessa dagana frá 3-6 á daginn. Allir sem annað hvort sjá okkur eða heyra af þessu hafa sömu skemmtilegu kommentin: "Oh... eruð þið að æfa ykkur?" eða "þetta er nú góð æfing fyrir ykkur"... alltaf gaman af því.
Anyway, þetta er líf mitt eins og það gerist best í dag. Annars er það gott að frétta að Kiddi er kominn heim frá London(jejj) og hann keypti að sjálfsögðu te handa mér (ennþá meira jejj). Þar að auki keyptir hann alveg fullt af snyrtivörum frá Noni vörumerkinu. Ég er sem sagt tilraunadýr. Það ræðst af því hvort mér líki þessar vörur eða ekki hvort hann muni flytja þær inn eða ekki. Hann er s.s. að vinna í Noni fyrirtækinu. Það er einmitt linkur hér til hægri á síðunni ef þið viljið kynna ykkur það nánar.
Pís át hómís.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home