Monday, April 16, 2007

Blóðþrýstingurinn

Jæja, þá eru rétt tæpar 35 vikur liðnar og farið að styttast verulega í annan endann. Fór í mæðraskoðun s.l. fimmtudag og þá var mér tilkynnt að ég mætti bara alls ekki fara í vinnuna aftur, alla vega ekki fram á þriðjudag þar sem ég fer aftur í skoðun og endanleg ákvörðun verður tekin um það hvort ég fari nokkuð aftur. Mér var sagt að ég mætti ekki einu sinni ganga frá. Þetta er nú dálítið meira mál þegar maður er kennari og þarf að setja annan kennara inn í það sem ég hef verið að kenna, sérstaklega ef sá kennari er frekar óreyndur. Sem betur fer hittumst við fyrir stuttu og fórum yfir flest allt saman.

Ástæðan fyrir öllu þessu, fyrir ykkur sem hafið áhuga á því, er að blóðþrýstingurinn er orðinn of hár hjá mér. Mér var bara sagt að fara heim og hvíla mig. Ég má ekki einu sinni þrífa heima hjá mér. Hvort sem þið trúið því eða ekki þá finnst mér það erfitt. Já, líka þetta með þrifin, því það er frústrerandi að mega ekki þrífa það sem ég sé að þarf og erfitt að þurfa að reiða sig á manninn og segja honum fyrir. Mér finnst miklu auðveldara að gera þetta bara sjálf, ekki það að Kiddi þrífi aldrei. Ég sé bara þörfina oftar og á annan hátt en hann.

Anyway, ég hef nú ekki verið að standa mig neitt alltof vel í hvíldinni, ja, þangað til í gær þ.e.a.s. Þetta er erfitt þegar maður hefur ákveðnum skyldum að gegna og búinn að undirbúa afmælisboð og bjóða fullt af fólki.

Planið er að reyna að nýta tímann og skrifa lokaritgerðina. Já, ég er ekki ennþá búin með hana!! Ætti kannski að byrja að vinna í stað þess að blaðra hér. Hm... kannski.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home