40 vikur og 2 dagar
Nei, ég er ekki búin að eiga ennþá, fyrir þau ykkar sem voruð að velta því fyrir ykkur. 23. er liðinn og ekkert að gerast ennþá. En ég get lofað ykkur því að það verður komið í síðasta lagi 6. júní, því þá verður eitthvað gert í málunum ef málin gerast ekki af sjálfu sér.
Annars er það í fréttum að við erum búin að festa kaup á hús í Danmerku sem við fáum afhent 1. ágúst, þannig að nú vitum við nákvæmlega hvert við erum að fara. Þetta er lítið og sætt hús sem er með útistofu og garð og alles, þannig að við erum rosalega ánægð með það. Það er líka gestaherbergi í húsinu, fyrir þau ykkar sem eigið leið þar um á næstu árum... hint, hint. Já, við verðum þarna sennilega í alla vega 5 ár, þannig að það er eins gott að einhver komi í heimsókn!!!
Þar sem ég hef ákveðið að taka mér smá frí frá ritgerðarsmíð (maður verður auðveldlega þunglyndur á vinnu sem ætlar aldrei að taka enda) fór í ég í bókasafnsferð um daginn og fékk mér bara skemmtilegar bækur mér til mikillar tilbreytingar. Þetta er alveg dásamlegt og kærkomin tilbreyting frá sjónvarpsglápi, þó svo maður hættir að sjálfsögðu ekki alfarið þeim vana. Það er kannski ágætt að vera með svona auðgleðjanlega sál eins og ég. Það þarf ekki nema te, góða bók, sjónvarp og einstaka heimsókn til að gleðja mig.

3 Comments:
Hæ,hæ Ólöf Inger! Rambaði aftur hérna inn á einhverju vafrinu:) Hvert til Danmerkur ertu að fara að flytja? Gangi þér vel með fæðinguna.Kv,Katla Þöll
Hæ, gaman að heyra í þér. Við verðum í Daugaard sem er rétt fyrir utan Vejle á Jótlandi. Ert þú ennþá í Danmerku?
Sömuleiðis!Ég hreinlega frétti af því að þú værir að flytja til DK frá Alvhild!Já ég bý enn í DK, í Odense á Fjóni:)Ég er alveg í leiðinni frá Köben.Verðið að kíkja við.
Blessuð stelpan, sé þú ert að bugast á ófrískunni!Þetta hlýtur að fara að koma:) Hlýtur að vera erfitt að standa í þessu heilsuleysi á meðgöngunni.Er einmitt á kafi í að lesa um fæðinguna núna.Bestu kveðjur,KÞ
Post a Comment
<< Home