Sunday, December 23, 2007

Jol, jol, jol

Gleðileg jól til ykkar sem lesið þetta blogg.


Endilega hafið í huga að jólin snúast um það að Jesús fæddist sem barn til að geta samsamað sig öllum, því öllum fæðumst við sem börn, allslaus og hjálparlaus. Hann lagði á sig að lifa sem maður til að geta verið talsmaður okkar frammi fyrir Guði. Hann veit hvað það er sem mætir manni í lífinu af því að hann hefur reynsluna, samt tókst honum að vera syndlaus til að geta tekið á sig okkar syndir. Allar syndir krefjast fórnar, en við sleppum við það þegar við játumst Guði. Í því felst syndafórnin. Við höfum margt að þakka fyrir.


Guð blessi ykkur og hafið það gott.

Saturday, December 15, 2007

3. helgin i aðventu

Þá er þessi laugardagur og hvíldardagur kominn og farinn. Við Gunnar Jakob fórum í kirkju í morgun, skruppum síðan til tengdó í mat og svo fór ég með þeim á dagamun með Óperukórnum í Aðventkirkjunni. Þetta er í fyrsta skiptið sem ég hef komist og hafði þess vegna bara gaman að. Litli maður var í pössun hjá mömmu og pabba á meðan og grét nánast allan tímann greyið litla. Greyin þau líka. Hann hafði ekki sofið nóg og ég held að þau hafi uppgötvað hvað ég á við þegar ég segi að það er ekki svo auðvelt að svæfa hann. Þess vegna skiptir rútínan hann ennþá meiru máli.

Annars höfum við verið á fróninu kalda síðan sl. þriðjudag og finnst bara æðislegt. Ég elska frostið og jólaljósin og víðáttuna. Það er eitthvað alveg sérstakt við Ísland, sérstaklega á aðventunni. Í gær var nú bara alveg brjálað veður þannig að ég ákvað að vera ekkert að fara út með barnið, annars höfum við verið á faraldsfæti á hverjum degi. Er með nokkuð þéttskipaða dagskrá til að komast yfir allt sem ég þarf að gera og hitta alla sem ég vil hitta. Þetta er nú samt ekkert yfirdrifið. Ég reyni að halda litla manninum í rútínu svo honum líði sem best.

Maðurinn minn heittelskaði kemur síðan næsta mánudagskvöld, sem betur fer segi ég bara. Okkur finnst bara ekki gaman að vera frá hvort öðru lengra en einn dag. Það er nú bara líka sem betur fer held ég.

Mamma og pabbi eru flutt í alveg svaka flotta íbúð verð ég nú bara að segja. Ja... hún er alla vega flott innréttuð. Gaman að sjá að þau hafa valið allt nákvæmlega eins og þau vildu hafa það, ekki bara það ódýrasta. Maður saknar nú samt Smárarimans vegna allra minninganna, þó allt hafi verið bleikt ... :) Mér skilst að þau sem keyptu húsið séu búin að breyta því frekar mikið. Það eru til dæmis komnar flísar út um allt gólf í stað teppisins, bleiki liturinn er orðinn hvítur, og skrifstofan er orðin að herbergi og hurðin að því hefur verið færð fram í ganginn. Það væri nú gaman að sjá þetta einhverntímann.

Jæja, best að fara að sofa.

Saturday, December 08, 2007

2. helgi í aðventu

Ákvað að blogga þar sem það eru ekki margar nýjar færslur hjá öðrum í bloggheiminum, af þeim sem ég les alla vega.

Barnið mitt er að læra að sofa á kvöldin og það tekur frekar mikið á. Erum að fylgja leiðbeiningum hjúkkunnar (held samt frekar að hún sé lýðheilsufræðingur), en eina ástæðan fyrir því að við ákváðum að gera þetta með þessari aðferð er að hann var farinn að vakna miklu oftar og eiga erfiðara með að sofna og þetta var farið að verða slítandi bæði fyrir hann og okkur. Vona bara að það verði betri árangur í kvöld en undanfarna daga, því annars gefumst við upp.

Annars erum við smátt og smátt að kynnast fleirum, sem gefur manni von um að eignast nánari vini með tímanum. Við vitum að Guð sér fyrir okkur. Ég þarf líka að fara að finna mér vinnu. Maður getur ekki lifað á engu. Það virðist ekki vera svo algengt að kennarar kenni bara eitt fag eins og á Íslandi. Þess vegna veit ég ekki hvort ég geti unnið sem enskukennari næsta vetur. Maður getur líka ekki byrjað á miðri önn sem kennari, nema í einstökum tilfellum.

Er að íhuga að gerast dagmamma, þar sem það gæfi mér tækifæri á að vinna fulla vinnu og byrja fyrr og samt að vera hjá barninu mínu. Er með svakalegan kvíða fyrir því að setja hann í pössun þó að ég viti að hann yrði í góðum höndum. Hef aldrei getað hugsað mér að gerast dagmamma fyrr en núna. Nú kann ég náttúrlega aðeins meira á börn :) Við sjáum til. Það er ekki hver sem er sem fær að vinna sem dagmamma heldur. Sem betur fer segi ég bara. Það er eftirlit með manni og maður fær aðstoð og hugmyndir auk þess sem maður fær að hitta starfsfélaga sína við og við. Við erum bara að velta þessu fyrir okkur.

Er í því að skrifa jólakort. Bjó til lítið jólatré úr greinum sem ég átti afgangs úr skreytingunum og skreytti það með skreytingum sem við, eða ég, man ekki hvort, fengum fyrir löngu síðan. Þetta er samt fyrsta jólatréð okkar :) Annars eru 3 dagar þangað til að við Gunnar Jakob förum heim til Íslands.

Monday, December 03, 2007

Gönsilöns

Fyrir ykkur sem ekki hafið tekið eftir því þá er ég búin að setja inn nýjar myndir af prinsinum á barnasíðuna hans. Endilega skoðið og skrifið í gestabókina.

Er loksins búin að finna út úr þessu rugli sem var í gangi þar.