Tuesday, June 27, 2006

Commentary on slen


Það hafa þó nokkrir nefnt það við mig að þeir geti ekki "commenterað" á síðunni minni. Þetta er hér með lagað þannig að ykkur er nú frjálst að segja skoðun ykkar á hinum mikilvægu málum þessarar merkilegu síðu.

Dagurinn í dag hefur hingað til verið afskaplega mikill slen dagur. Það er eins og líkaminn vilji bara fá að vera í fríi í friði og mótmælir öllum dugnaði m.þ.a. vera endalaust þreyttur. Held samt að það gæti hugsanlega mögulega verið vegna þess að ég er að reyna að hætta að drekka kaffi. Það gengur eitthvað illa einmitt vegna þess hvað ég verð syfjuð allan daginn þangað til að ég gefst upp. Hm!! Ekkert sérlega sniðugt. Lyktar eitthvað af vítahring.

Anyways, fór í sólbað og dottaði þar í smástund. Hrikalega er gott að vera í sólbaði, ekki skrýtið að maður verður myglaður á veturna þegar þetta tækifæri stendur ekki til boða.

Jæja, bækur lífga alltaf upp tilveruna, hvort sem það er vetur eða sumar. Þar sem ég er enskukennari læt ég fylgja eitt stykki ljóð um ágæti bóka:

There is no frigate lika a book
To take us lands away,
Nor any coursers like a page
Of prancing poetry.
This traverse may the poorest take
Without oppress of toll;
How frugal is the chariot
That bears a human soul!
(Emily Dickinson 1830-1886)

Monday, June 26, 2006

Brunakerfið yndislega

Jæja, það kom að því að ég þurfti að gera upp hug minn og ég ákvað að það væri skynsamlegast og réttast (og þægilegast) að halda heit mín við Suðurhlíðarskóla. Það er fínt. Þar er gott að vera í bili.

Við Kiddi áttum okkur rómantískt kvöld í gær þar sem við grilluðum voðalega fínan mat og sátum úti á verönd við kertaljós. Síðan horfðum við á Walk the Line, og mæli ég eindregið með þeirri mynd. Rétt áður en við borðuðum var hringt í okkur frá Holtaveginum og okkur tilkynnt að brunakerfið hafði farið í gang. Við vorum sem sagt húsverðir um helgina og brunakerfið fór hvorki meira né minna en 5 sinnum í gang. Ég verð að játa það að ég var mjög nálægt því að verða gráhærð. Það má sem sagt ekki opna ofninn í eldhúsinu ef verið er að elda í honum, því viftan er staðsett þannig að gufan fer framhjá þegar ofninn er opnaður. Mjög sniðugt. Fyrir utan það er náttúrlega brunakerfið líka eitthvað bilað, þannig að það er bara æðislegt að halda veislu þar þessa dagana, eins og þið skiljið. Sérstaklega ef maður vinnur við hið eftirsótta starf húsvarðarins.

Sem betur fer var einhver með lykil þetta síðasta skipti þannig að við gátum snætt þennan dýrindis mat í friði.

Friday, June 23, 2006

Gæsun Ingunnar

Dagurinn í gær var afskaplega skemmtilegur. Í stað þess að læra fór ég út í sólbað og kláraði bókina sem ég hef verið að lesa. Það er alltaf svo gaman að klára bækur, þó það sé gaman að lesa þær líka. Síðan fór ég niðrí bæ þar sem ég og nokkrar vinkonur (aðallega samt frænkur :)) gæsuðum Ingunni frænku minni.

Um morguninn var hún látin syngja "I will be your hero" með Enrique Eglesias í beinni á Kiss Fm, þetta var nota bene mjög stuttu eftir að hún vaknaði. Síðan, þegar við hittumst um 17 leytið, kom hún klædd eins og stúlka úr ævintýrum hollenskum sögum, með tígó og rauðar kinnar. Hún átti fyrst að leysa hinar ýmsu þrautir (þ.e.a.s. hún var látin gera sig að fífli), síðan var hún send í nudd til hennar Pippu og loks enduðum við niðrá Carusó þar sem við borðuðum góðan mat. Þeir sem höfðu meiri orku og þurftu ekki að mæta í vinnu næsta dag fóru heim til Katrínar og Vilborgar og fengu sér eftirrétt. Þar skoðuðum við líka atburði dagsins á videói.

Sem sagt, mjög skemmtilegt. Nú bíð ég bara þar til kemur að næsta fórnarlambi, það eru svo mörg brúðkaup í sumar :)

Wednesday, June 21, 2006

Mikið er lífið skrýtið. Ég vinn á frábærum vinnustað (Suðurhlíðarskóli fyrir ykkur sem vissuð það ekki), en málið er bara að ég vinn í grunnskóla við að kenna hin ýmsu fög, þó ég sé náttúrlega bara menntuð til að kenna ensku í efri bekkjum grunnskóla og í menntó. Ég er búin að lofa mér allt næsta ár, því ég er mjög ánægð þarna, þó ég hef verið að hugsa um það undanfarið hve þægilegt það væri að kenna í menntó og fá alltaf lengri frí á sumrin og hugsanlega um jólin líka, þó vinnan yrði strembnari. Í dag fæ ég síðan póst frá kennaranum sem hefur umsjón með lokaritgerðinni minni þar sem hún "býður" mér (er alla vega milliliður) vinnu í Fjölbrautarskólanum á Suðurnesjum.

Man!! Þetta hefði verið svo spennandi, og einmitt það sem ég hef verið að hugsa um, nema það að ég hugsaði að það væri líklega sniðugt að halda bara áfram þar sem ég er núna, því við förum jú út eftir ár.

Oh, well. Svona er það. Maður á að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur, því það er líka gott, bara öðruvísi gott.

Nóg um það. Það sem er gleðilegt er að ég er byrjuð að læra á celló...:) Geðveikt gaman!! Það fær samt enginn að hlusta, alla vega ekki fyrr en eftir að ég er farin að spila fullkomlega...;)

He, he...

Tuesday, June 20, 2006

Kraftaverkið í dag

Í dag tókst mér hið ómögulega, þ.e.a.s það sem hefur virst ómögulegt í um hálft ár: nefnilega að byrja á M.Paed ritgerðinni minni. Yesss!! Hallelúja!! Já!!! Það tók líka ekkert svo langan tíma. Ég á bara ekki til orð...

Jú, kannski aðeins fleiri. Jæja, ég á alla vega tvo aðdáendur: bróður minn og spúsu hans með fallega nafnið. Geðveikt gaman.

Jæja, í tilefni dagsins ætla ég að gefa ykkur brot af þeim vísdómi sem ég er að fylla ritgerðinni minni af (einu sinni kennari, alltaf kennari):

Schools are like airport hubs; student passengers arrive from different backgrounds for widely divergent destinations. Their particular takeoffs into adulthood will demand different flight plans (Levine, 2002, p.336).

Og hana nú!

Monday, June 19, 2006

Markmið

Ég hef ákveðið að reyna að skrifa eitthvað á hverjum degi, þetta er náttúrlega aðallega til að halda aðdáendum mínum góðum :) Þar sem klukkan er frekar margt núna, mun ég geyma það til morguns að segja eitthvað skemmtilegt og gáfulegt.

Ta, ta.

Sunday, June 18, 2006

Jahér, það svakalegt hvað þessi síða mín er vinsæl!! Greinilega margir sem lesa hana. Er að velta fyrir mér hvort ég eigi að hætta að blogga, en það væri líklegast sniðugt að halda síðunni, því það styttist í það að maður flytji til útlanda í einhvern tíma. Kannski fæ ég einhverja aðdáendur þá...jejj, gaman, gaman.

Talandi um frægð, ég hef hitt þó nokkra undanfarið sem ég þekki ekki neitt, en sem segjast hafa hlustað á Kangadiskinn og finnst hann greinilega áhugaverður. Ég hef þá tekið þátt í einhverju sem fólk mun muna eftir :)

Við Kiddi erum að passa höll pabba og mömmu um þessar mundir þar sem þau eru í útlöndum. Já, mér finnst þetta sko vera höll miðað við frímerkið okkar þar sem maður getur næstum því hreyft sig. Hlakka til að verða stór, þá ætla ég að verða rík og eignast það stórt húsnæði að ég geti boðið fleiri en tveimur gestum í einu.

Talandi um gesti, við vorum einmitt með nokkra góða í heimsókn hérna í Grafarvoginum í gærkvöldi. Við höfðum boðið Heiðrúnu systur og Hildu vinkonu (og fyrrverandi samkennara), en eftir sem við hittum fleiri niðrí bæ, fór að fjölga í hópnum, og af því að fólk er orðið svo heimakært hjá okkur í Grafarvoginum barst þetta bara út og það komu enn fleiri. Svona á þetta líka að vera.

Jæja, þetta var mitt lífsmark í bili.
Pís át.