Saturday, October 03, 2009

Ánægjulegur laugardagur

Við áttum okkur yndislegan dag í gær. Heimilið var bara í þokkalegu ástandi miðað við undanfarið og ég var búin að planleggja allar máltíðir fyrirfram, aldrei þessu vant. Maður nýtur hvíldardagsins eitthvað svo miklu betur þegar allt þetta er afstaðið.

Kirkjuferðin var líka gefandi, maður hlakkar alltaf til að hitta fólkið sem er orðið að nánum vinum manns og sem styður mann alveg sama hvað.

Eftir kirkju var okkur boðið heim til prestsins í kaffimat, þannig að við náðum að fara heim og borða raclettemat og leggja okkur áður en við héldum af stað í þessari líka þvílíkri helli dembu. Þar sem ég var búin að baka brownies, kaupa rjóma og jarðaber, þá tókum við það náttúrlega bara með okkur, prestinum og börnunum hans 3 plús vikonu til mikillar ánægju. Þar var rætt um margt og mikið, en það sem stendur uppúr er að við stofnuðum biblíulestrarhóp. Yess!! Þetta er eitthvað sem okkur Kidda höfum langað að gera í 2 ár! Nú er bara að bjóða fleirum með og hittast svo næsta miðvikudag :)

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Gaman að sjá að þú ert farin að blogga aftur Ólöf Inger mín Við getum fylgst aðeins betur með lífi ykkar í Danaveldinu Knús frá okkur pabba

13 October, 2009 07:27  

Post a Comment

<< Home