En, já, ég ákvað að taka mér veikindafrí frá vinnunni í dag. Er búin að vera eitthvað slöpp, sérstaklega í gær. Lífið er samt spennandi og maður er alltaf að heyra um einhverjar vinkonur sem eru orðnar óléttar. Greinilegt að við erum komin á fjölskyldualdurinn. Jahér, ætli maður þurfi ekki bráðum að fara að þroskast.
Það var 100 ára afmæli Aðventkirkjunnar í Reykjavík svo skóla Aðventista á Íslandi, þannig að það var afskaplega hátíðleg stund í kirkjunni. Björn Bjarnason og einhver Steinunn frá Biskupsstofu mættu og voru með tölu. Nemendur mínir sungu og voru með leikrit, þannig að það létti aðeins á stemningunni. Fyndið, stelpurnar mínar eru með algjört æði fyrir Kanga og búnar að suða í mér að kenna þeim afrísk lög, þannig að við sungum Bwana Yesu kafufuka. Að eigin ósk voru þær klæddar í kanga. Mjög skemmtilegt.
Annars erum við Kiddi og vinur okkar Jón nýbyrjuð með unglingastarf þar í kirkjunni, en það hefur verið mikil þörf á því hingað til. Þetta er allt mjög spennandi og unglingarnir mjög jákvæðir.
Jæja, þá fer þessum fréttapistli senn að ljúka. Vona að allir sem lesa þetta séu hressir og farnir að hlakka til jólanna eins og ég :)


Hér erum við Sonja (tengdamamma) á einum fegursta stað á Ísland, Snæfellsnesinu. Þurftum að labba smá spotta til að komast þangað.


