Bildekk og piano.
Jæja, þá eru dekkin á bílnum okkar eitthvað að gefa sig, sem er nú merkilegt nokk þar sem þau eru alveg ný og hafa bara verið notuð í sumar. Alltaf gaman að því þegar maður uppgötvar að það sem maður á er algjört drasl.
Annars er það gott í fréttum að píanóið okkar mun bráðum verða sent út til okkar. Jejj!! Geðveikt gaman :) Við fengum þetta gamla fallega píanó í brúðkaupsgjöf, en höfum aldrei haft pláss fyrir það heima hjá okkur fyrr en nú. Það er ekkert smá langt síðan ég spilaði á píanó, sem er náttúrlega bara alveg hræðilegt.
VIð skruppum til Þýskalands sl. miðvikudag og keyptum heilan helling. Aðallega vínberjasafa og te samt :) Gaman.
Það er farið að kólna aðeins hérna. Haustlitirnir skarta sitt fallegasta og ég hef þurft að játa það að þetta er uppáhalds tíminn minn á árinu. Það eru tvær vikur í að Heiðrún komi og tveir mánuðir í að við skreppum heim til Íslands um jólin. Voðalega líður tíminn hratt. Litli maður stækkar með hverjum deginum og er orðinn 4,5 mánaða gamall. Honum finnst voða gaman að naga á sér tærnar, sem er náttúlega ferlega fyndið. Hárið hans er farið að þykkna og hann er bara orðinn ferlega stór.
Lífið er bara gott og ekkert sérstakt sem hægt er að kvarta yfir, nema lélegum dekkjum...