Vinna, verkfall og mæður
Fyrsta vikan sem dagmamma passandi börn er liðin og ég lifði hana af. Fyrir utan GJ var ég bara með einn annan strák, og hann var í mesta lagi í 6 tíma, þannig að þetta byrjar rólega, sem er bara hið besta mál. Á morgun hefst síðan verkfallið okkar, þannig að allt sem ég hef verið að vinna að í þessari viku er basically ónýtt, sem er ekki eins skemmtilegt. En... þetta kemur fljótt aftur.
Mæðrahópurinn hittist í dag eftir langt hlé þar sem allar eru farnar að vinna. Við breyttum til í þetta sinn og höfðum makana okkar með, sem var gaman, því þá gátu þeir fengið að sjá konurnar sem við höfum verið að umgangast sl. vetur. Þetta er allt mjög fínt fólk. Það er gaman að segja frá því að ég komst að því fyrst í dag að við erum allar á svipuðum aldri, nema ein sem er 10 árum eldri, en ég vissi það alveg því hún hafði sagt mér það. Er það merki um minnimáttarkennd þegar maður heldur alltaf að allir aðrir séu eldri en maður sjálfur eða er ég bara svona mikið barn í mér? Kiddi sagði mér að honum fyndist ég líta yngri út en hinar konurnar af því að ég er fallegri en þær... oh :) Frekar sætt af honum!
Annars er ekki langt þangað til að Gunnar Jakob fer að labba. Hann labbaði í dag á meðan ég leiddi hann með einni hendi. Það verður samt að fylgja með að hann var mjög ákveðinn í að vilja vera hjá mér. Þetta var þess vegna dálítið ómeðvitað hjá honum ennþá.
Sumarið er alveg komið með sól og hita sem er dásamlegt alveg hreint. Í dag voru 21 gráða og ég var að kafna þegar ég kom heim eftir að hafa labbað heim þessa hálftíma löngu leið heim frá þeim sem héldu boðið. Þetta var samt frábært veður að ganga í. Ég var bara of mikið klædd þar sem ég hafði ekki skipulagt að labba heim.