Af hjólhýsum og börnum
Yfirleitt finnst mér ég ekki hafa neitt að segja á þessari bloggsíðu og velti því oft fyrir mér til hvers maður er eiginlega að hafa fyrir því að tuða um eigin líf og tilveru. Hverjum er nú ekki sama. Þetta virðist eitthvað svo innihaldslaust og tilgangslaust. Aðrir skrifa um svo merkilega hluti sem þau eru að hugsa um og tjá skoðanir sínar varðandi það sem er í fréttunum og hafa voðalega djúpar hugsanir um hitt og þetta.
Það gerast bara afskaplega venjulegir og óspennandi hlutir í lífi mínu. Það er nú samt ekki alveg satt, en mér líður þannig samt mjög oft hér í þessari þöglu tilveru þar sem maður hittir næstum engan.
Við erum sennilega að fara að fjárfesta í hjólhýsi seinna í dag, sem er náttúrlega frekar spennandi og kannski frekar klikkað líka. Þetta er sem sagt Adria vagn frá 2003. Frekar flottur og hefði verið frekar dýr, en við fáum hann frekar ódýran vegna þess að hann lenti í slysi og það þarf að laga hann. Annars skoðuðum við fyrst önnur hjólhýsi á svipuðu verði og við fengum þennan á, en þau voru öll frá árunum 75-89 og misspennandi verð ég nú bara að segja. Ástæðan fyrir þessum kaupum okkar eru tvennar: Þá getum við ferðast á skemmtilegan hátt :) (með dáltið mikinn lúxús) og í öðru lagi, þá eigum við ennþá gestaherbergi fyrir fólkið sem kemur til okkar. Sem sagt mjög sniðugt.
Við erum ss. flutt út úr okkar svefnherbergi í gestaherbergið. Hitt verður notað fyrir dagmömmu starfið. Það er hentugara upp á að aðeins hluti af húsinu verði undirlagt og hægt að hafa helminginn af húsinu prívat.
Kiddi stendur í ströngu við að búa til sandkassa, setja upp girðingu og taka til í verkfærageymslunni, svo allt verði tilbúið þegar ég byrja að vinna í næstu viku. Var að komast að því að ég byrja bara með eitt barn fyrst, en þetta barn er sonur einnar í mæðrahópnum mínum þannig að ég þekki hann aðeins sem er náttúrlega kostur, þó hann sé ekkert auðvelt barn. Ég hef komist að því í gegn um annað fólk að ég á algjört draumabarn. Ég vissi það náttúrlega alveg, en alltaf gaman að heyra aðra segja það :)
Jæja, læt þetta duga í bili. Þarf að fara að gera eitthvað annað skiptir hugsanlega máli.

2 Comments:
Ég skrifa líka svona tilgangslaus blogg um eigið líf og tilveru. Nenni ekki mikið að skrifa um málefni líðandi stundar af því að það eru alltaf einhverjir sem hafa aðrar skoðanir og mig langar bara ekkert til að heyra um þær í kommentakerfinu á blogginu mínu :) Mér finnst blogg um líf fólks lang skemmtilegust, sérstaklega fólk sem maður hittir sjaldan og er kannski ekki í sambandi við.
EN...kannski er það bara ég sem er svona hnýsin og forvitin ;)
Kv. Heiðdís
Mitt blogg er líka algerlega bara um mig og það sem gerist hjá mér. Það er gaman að frétta af fólki sem á heima í útlöndum :)
Til hamingju með 27 ára afmæli eiginmannsins (ég er hrikalega minnug á afmælisdaga :) )
Post a Comment
<< Home