Wednesday, February 13, 2008

Veikindi og leiðindi

Já, það eru allir veikir á heimilinu nema ég. Barnið er á fullu að taka tennur og var með hita (í fyrsta sinn greyið litla) síðustu nótt annað hvort út af því eða af því að það eru veikindi að ganga. Hann svaf því lítið og ég þurfti að halda mikið á honum. Hann hefur litla sem enga matarlyst og er lítill í sér. Ekki fékk ég mikla hjálp frá manninum þar sem hann er hundlasinn með flensuna og er með einhverja veiru sem er smitandi. Hann getur því ekki verið mikið nálægt litla manninum. Það er því ekki mikið spennandi að gerast hjá okkur og við greinilega ekki á leiðinni til Þýskalands eins og planið var. Svona er nú það. Við verðum bara að skreppa einhverja helgina í staðinn. Þetta er nú ekki skemmtilegt frí fyrir Kidda og Kjartan, sem er líka lasinn. Hvað er þetta með þessar flensur?!

2 Comments:

Blogger Unknown said...

Það er svo ógeðslega glatað að vera veikur. Ég er búin að senda eitt til tvö börn heim a hverjum einasta degi síðan á föstudaginn síðasta. Flensan er sko heldur betur komin til að vera :-/

Vonandi batnar mönnunum þínum sem fyrst :)

Bestu kveðjur,
Þóra Jenny.

14 February, 2008 10:42  
Anonymous Anonymous said...

Hæ vinan! Já, við hjónakornin erum bæði veik. Það hefur aldrei gerst áður. Höfum verið svo heppin að hafa ekki fengið flensu í mörg mörg ár. En vona að þetta sé ekki flensa. Mér finnst eins og að ég sé ómissandi í vinnunni og að enginn geti kennt fyrir mig, allt fari einhvern veginn úr skorðum. Glatað. Verum bjartsýn.
Kv, lazarusarnir í Lómasölum (Guðrún og Pétur)

18 February, 2008 05:56  

Post a Comment

<< Home