Frost og snjór
Loksins kom smá frost og fallegur snjór. Er búin að sakna þess mikið, enda er það hluti af sjarma vetrarins. Í gær var ss. þriðji dagurinn með snjó síðan við komum hingað (til samans) og alveg ofboðslega fallegt úti. Ég þarf hins vegar alltaf að sofa í flísbuxum og þykka sloppnum mínum því mér er alltaf svo kalt á kvöldin.
Við fórum til Silkiborgar að heimsækja afa og ömmu Kidda. Amman er alveg eldhress, enda ofvirk með eindæmum. Afi hans hefur verið mikið lasinn undanfarið, en hann hefur verið með lungnabólgu í nokkra mánuði núna og svo er sykursýkin búin að vera mjög slæm undanfarið. Það virðist vera að heilbrigðiskerfið líti á gamla fólkið sem bara gamalt fólk, en ekki fólk með sjúkdóma sem eigi að reyna að laga. Ekki alveg rétt viðhorf að mínu mati, þó það sé nánast allt að hjá viðkomandi, eins og hjá honum. Hann er alveg svakalega þjáður í öllum líkamanum, en reynir að komast undan því að fara til læknis af því að þau segja honum bara að hann sé gamall. Þetta er alveg hræðilegt viðhorf. Veit ekki hvort það sé svona á Íslandi, en mér finnst þetta ekki alveg rétt.
Anyway... litli rass stækkar með hverjum deginum og er alltaf sítalandi við sjálfan sig og aðra. Hann er mjög nálægt því að geta sagt mamma :) Ég er alltaf jafn hissa á því hvað það er merkilegt að eiga barn. Lítill einstaklingur sem finnst allt svo merkilegt og skemmtilegt og skrýtið. Svo er hann sko með sínar eigin skoðanir á öllu. Já, lífið er spennandi.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home