Thursday, November 29, 2007

Jólakortaundirbúningur



Jæja, þá eru jólakortin pöntuð og þá er bara að bíða eftir að þau verði tilbúin. Flestar jólagjafir eru annað hvort í vinnslu eða í höfn, þannig að þá fer maður að geta slakað aðeins betur á. Þarf samt að útrétta ýmislegt fleira áður en heim er haldið. Er búin að taka fram jóladótið og búin að komast að því að það er alveg sorglegt úrval og lítið sem við eigum. Þetta á sér náttúrlega þá skýringu að við bjuggum í minnstu íbúð í heimi fyrsta árið okkar sem ektapar og síðan höfum við verið í útlöndum. Nú, svo verðum við jú ekki heima í ár heldur, þannig að það tekur því varla að fara að kaupa einhverjar skreytingar þetta ár. Sjáum til með það næsta. Kannski bjóðum við fólkinu bara út til okkar næsta ár:)

Anyway, ákvað að láta ykkur sjá þessa sætu mynd. Erum komin með nýja myndavél þar sem sú litla var ekki alveg að gera sig og ekki vill maður nú missa af barninu áður en það stækkar. Þessi mynd var samt tekin áður en við eignuðumst fína flassið, en ... samt sæt.

Annars er það í fréttum að maðurinn er orðinn formlegur gleraugnaglámur síðan í gær. Þetta (... ) blogg vill samt ekki hlaða upp myndina af honum, þannig að þið verðið bara að sjá hann seinna. Hann er annars alveg ferlega heitur með þessi gleraugu :)

3 Comments:

Blogger Unknown said...

Sæt myndin af mönnunum þínum :)

01 December, 2007 11:58  
Anonymous Anonymous said...

oooo músi músi músi gúsi!

02 December, 2007 15:42  
Anonymous Anonymous said...

Ótrúlega sæt mynd:o) Gunnar Jakob er eins og lítill kjúklingur... ég meina það, sætur kjúklingur:o) hehe

06 December, 2007 04:45  

Post a Comment

<< Home