Ja...
Þá er Heiðrún systir komin og farin og mikið te og latte runnið niður, þó ekki til sjávar heldur ofan í okkur :) Við fórum til Árósa og versluðum og kíktum á kaffihús. Rosa gaman. Það er samt af sem áður var, þegar maður gat bara slakað á og verið eins lengi og maður vill og bara haft allt eftir eigin hentisemi. Litli maðurinn hefur náttúrega takmarkað úthald og er erfiður á kvöldin, þannig að þá vill maður ekki vera á ferðinni og lenda í tómu veseni. Eins og hann er glaður og brosmildur þegar hann er vakandi, þá á hann erfitt með að sofna, sérstaklega á kvöldin, svo það er ekki svo auðvelt að fara í heimsóknir og því um líkt þá.
Annars var ég að fá nýtt rúm. Ég er orðin svo léleg í skrokknum eftir þetta allt saman að ég þarf tempur rúm, sem er nú ekki alveg það ódýrasta á markaðinum. Við fengum samt rúmið sjálft og náttborð í stíl í kaupæti, en það eru dýnurnar sem eru dýrar. Talandi um skrokkinn mans, ég veit ekki hversu viðeigandi það er að tala um þetta svo sem, en eins og ég hlakka nú til að hitta fjölskylduna þegar ég kem heim, þá hlakka ég nú ekki til að afi og amma og gömlu frænkurnar segi mér að ég sé nú ennþá frekar feit og hvort mér gangi nú ekki nógu vel að ná þessu af mér. Þetta gamla fólk hefur því miður alltaf þörf fyrir að tala um holdarfar manns eins leiðinlegt og óviðeigandi sem mér finnst og hefur alltaf fundist það. Þið eruð nú örugglega orðin forvitin um það hversu feit ég er :) er það ekki? Það eina sem ég ætla að segja er að ég bætti á mig, eða... þyngdist um 37 kg. Það er nú smá þyngd og ekki neitt voðalega þægilegt eins og þið getið rétt ímyndað ykkur. Stór hluti af þessu fór á 2 mánuðum, aðallega sökum vatnslosunar, en... maður verður nú ekki tágrannur um leið aftur. Afi og amma voru nú hissa að ég skyldi ekki vera búin að ná þessu af mér 2 mnð eftir fæðingu, svona er nú það. Ég er nú ekki eins og Viktoría Beckham og fleiri frægar konur sem gera ekki annað eftir fæðingu en að vera í ræktinni.
Voðalega er þetta niðurdrepandi umræða. Jæja, skrifa meira seinna þegar ég er búin að jafna mig á þessu og bara nenni því :)

4 Comments:
Mér finnst þú bara líta mjög vel út, mín kæra. Ég átti yndislegan tíma með ykkur. Te og latte var hápunkturinn:o):o) En samt eiginlega Gunnar Jakob - hann var súpertoppur:o)
Kveðja,
Heiðrún.
Það að eignast barn er náttúrulega bara kraftaverk, fólk ætti frekar að velta sér upp úr því...
Hlakka til að fá þig heim og knúsa Gunnar Jakob :)
Kv, Guðrún Birna
Ohhh, það er svo fúllt þegar fólk segir svona við mann, áttar sig ekki á hvað þetta getur verið særandi...kannast við svona ömmu :)Mikilvægast að vera heilbrigður :) #smúts#
Kv. Heiðdís
Ég þyngdist um 16 kg, og ég er að ströggla við að ná síðustu 5 kg af núna og guttinn er orðinn 20 mánaða! Þetta tekur tíma :(
Kveðja
Elín
Post a Comment
<< Home