Svona er lifið nuna...
Þá erum við flutt til gamla settsins. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þau því þau flúðu í bústaðinn í dag, daginn eftir að við komum...
Þetta er búið að vera ansi viðburðarmikil vika að mörgu leyti. Við pökkuðum allri búslóðinni okkar og er hún því komin í gám og fer bráðum út á undan okkur til Danmerkur. Greyið Kiddi lenti nú að mestu leyti aleinn í þessu aftur, því ég var í mömmó á meðan. Ég fór síðan í smá aðgerð í gær, sem var ekki mjög skemmtilegt. Er búin að vera að hitta lækna og aðra fræðinga, þannig að mamma og pabbi hafa fengið að æfa sig í afa og ömmu hlutverkinu undanfarið. Eins gott að litli maðurinn er svona góður eins og hann er. Annars er það alveg svakalega erfitt fyrir mig að skilja við hann. Það er fátt eins erfitt og það í lífinu akkúrat núna.
Svo eru bara rúmlega tvær vikur í brottför. Það verður skrýtið að flytja í okkar eigið hús. Það verður skrýtið að flytja til útlanda. Þetta er fyrsta eignin okkar :) Þetta er svo fjarlægt að ég á eftir að þurfa smá tíma til að átta mig á þessu... margt að hugsa um...

0 Comments:
Post a Comment
<< Home