Thursday, June 14, 2007

Nýtt líf

Ég þakka allar hamingjuóskir. Alltaf gaman þegar fólk gefur sér tíma til að kvitta og láta vita af sér.

Það er full vinna að vera foreldrar en það gengur bara nokkuð vel þrátt fyrir þreytu inn á milli. Við (kannski aðallega ég, því ég hef eiginlega ekki getað hreyft mig í 9 mánuði) hlökkum mest til að geta farið út að ganga með vagninn. Stefnan er sett á morgundaginn, því þá er pilturinn, sem hefur fengið það merkilega nafn Gunnar Jakob Kristinsson, nákvæmlega tveggja vikna gamall. Fyrir ykkur sem hafið áhuga er hann kominn með heimasíðuna http://www.gunnarjakob.barnaland.is/. Þið þurfið að vísu leyniorð, en þið getið fengið það annað hvort m.þ.a. senda mér mail eða sms.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Flott nafn, Gunnar Jakob ;) Til hamingju með það. Ætlum að reyna að kíkja á ykkur í vikunni ef þið eruð í stuði ;) Verðum í bandi!
Kv. Jóhanna og Fannar Smári

17 June, 2007 10:29  
Blogger Ólöf Inger said...

Bara gaman að því. Bara gott að hringja á undan sér.

18 June, 2007 11:30  
Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með Gunnar Jakob. Fallegt nafn. Bestu kveðjur,KÞ

01 July, 2007 05:26  

Post a Comment

<< Home