Friday, August 10, 2007

Danmörkin

Jæja, þá er maður kominn til Danmerkurinnar. Allt er danskt, meira að segja bloggið mitt er með allt á dönsku.

Húsið okkar er stórglæsilegt, miklu flottara en á myndunum. Tengdafjölskyldan var búin að mála allt og skipta um teppi í herbergjunum auk þess sem þau gáfu okkur nokkurn veginn heila búslóð, þannig að þegar við komum var allt tilbúið. Það eina sem vantaði var dótið okkar til að manni liði eins og maður ætti eitthvað í þessu. Við erum með stærðarinnar garð með eplatrjám og jarðaberjum og blómum. Ekki galið það! Nú þarf maður bara að kaupa sér hanska og fara að bretta upp ermarnar til að halda þessu við. Þetta er allt voða spennandi, en það á eftir að taka smá tíma að venjast nýjum aðstæðum. Það eru fullt af flugum hérna og alveg svakalegur hiti. Ég svitna allan sólarhringinn. Mér líður nú oft eins og ég sé bara í Afríkunni.

Gunnar Jakob stækkar og stækkar. Hann virðist dafna vel og er mjög athugull. Það er ótrúlegt hvað hann breytist mikið með hverjum deginum. Alltaf sér maður eitthvað nýtt í hegðun hans. Hann verður farinn að hlaupa áður en maður veit af.

Jæja, læt þetta duga í bili. Þarf að fara að sofa svo litli maður fái ekki allt of langt forskot á mig. Hej!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home