Thursday, January 03, 2008

Dvölin senn á enda

Þá fer að líða að brottför, en við förum heim til Danmerkur á morgun eftir ágæta heimsókn og dvöl hér á Íslandinu. Það hefur verið frábært og upplyftandi að vera hér, við höfum hitt marga og getað slakað á inn á milli, en það verður nú samt gott að koma heim. Heima er nú alltaf best þrátt fyrir allt, í hvaða landi sem það nú er.

Það hefur verið afskaplega skrýtið að fylgjast með foreldrum okkar í hlutverki afa og ömmum, og held ég að ástæðan sé fyrst og fremst sú að ég ólst að megninu til ekki upp með svoleiðis fyrirbærum nema bara "på afstand" eins og maður segir ekki :)

Litli Göns hefur nú samt notið allrar athyglinnar sem hann hefur fengið og, þrátt fyrir efasemdir sumra, hefur hann vanist látum. Pínu ruglingur á svefnvenjum fylgir náttúrlega alltaf svona hátíðum, en þetta hefur nú samt haldist þokkalega vel miðað við allan eril og heimsóknir. Kannski er það vegna þess hversu ákveðin ég (og maðurinn minn) er í að halda þessu þannig. Hver veit.

Annars þyrfti ég nú eiginlega að fara að pakka niður. Held ég bíði samt þangað til að litli maðurinn vakni.

Þangað til næst kæru lesendur. Lesumst hinum megin við hafið.

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hlakka til að sjá myndir :)
Kv. Heiðdís

04 January, 2008 11:23  
Anonymous Anonymous said...

Já, það var gaman að hitta ykkur. Mun halda áfram að fylgjast með ykkur í Danaveldi!

Kv, Guðrún B

06 January, 2008 10:32  

Post a Comment

<< Home