Wednesday, August 30, 2006

Lífið í dag

Jæja, þá er lífið tekið við og allt á fullu. Brúðkaup Jónsa og Marisu er afstaðið alla vega að einhverju leyti, því þau ætla jú að hafa staðfestingarbrúðkaup hér líka. Undirbúningurinn er að sjálfsögðu á fullu.

Vinnan er hafinn og fullt að gera í henni. Er að kenna fleiri fög og því meiri undirbúningur en áður. Samt mikið fjör. Alla vega ekkert mál að sofna á kvöldin. Hafði ekki einu sinni orku og getu til að fylgjast með Magna í nótt, sem er náttúrlega algjör skandall. Mun samt að sjálfsögðu horfa á hann í kvöld og annað kvöld.

Þetta var nú aðallega smá lífsmark hjá mér, því það er langt síðan síðast. Er að kenna í tölvutíma og hann er að verða búinn, þannig að: adios amigos þangað til næst.

Tuesday, August 01, 2006

Frægðarverk Zidane

Kíkið á þennan link með lag um Zidane og hans fræga skall :)


http://www.youtube.com/watch?v=wEw9FyLlgTI&mode=related&search=