Danmerkurferð og fleira
Jæja, gott fólk.
Þá fer senn að líða að Danmerkurferðinni góðu, en þannig er mál með vöxtum að við munum eyða jólunum með tengdafjöldkyldunni sem er búsett í Danmerku í bili. Við förum sem sagt snemma næsta laugardagsmorgun og munum vera fjarverandi í 2 vikur. Ég kveð ykkur því hér með, því að á morgun verð ég frekar upptekin í vinnunni. Skóladagurinn fer í það að undirbúa kirkjujólin þar sem verður sýnt jólaleikritið um Panov afa og sungnir verða ýmsir jólasöngvar. Kirkjujólin verða síðan annað kvöld.
Kiddi greyið er einn í því að flytja fyrir okkur, því við munum fara í aðra íbúð frá og með morgundeginum. Ég er því miður enn með svakalega sterkt lyktarskyn sem gerir það að verkum að ég get ekki stigið fæti inn í íbúðina sem við höfum verið í síðan í haust. Þetta er alveg svakalega skrýtið ástand.
Annars er það í fréttum að við fengum að sjá barnið okkar í dag. Vá, það var mjög sérstakt. Það virðist allt vera í lagi, en þar sem okkur var sagt að koma áður en við færum til Danmerkur, sagði konan sem sá um þetta í dag að við værum í raun allt of snemma. Þess vegna fáum við og þurfum við að fara aftur annan janúar. Það er náttúrlega bara gaman, því þá fáum við að sjá barnið betur og fáum líka aðra mynd. Það var samt gott að við skyldum hafa farið núna, því þá getum við sýnt tengdó myndina.
Annars er ég mikið að pæla í mataræði þessa dagana, og þá sérstaklega hvort það sé sniðugt fyrir mig að drekka malt eða ekki. Það segja allir að það sé í lagi og ljósmóðirin í dag hafði nú bara aldrei fengið þessa spurningu áður, en það er nú samt 2,25% áfengi í því engu að síður.
En...ég kveð ykkur í bili. Ef ég nenni ekki að skrifa næstu vikurnar, þá segi ég bara: Gleðileg jól :)