Tuesday, December 16, 2008

2

Tveir dagar eftir. Koma svo: burt með þetta kvef!!!

Monday, December 15, 2008

3

Þrír dagar í heimkomu. Brjálað að gera og litli með gubbupest í gær. Allir í kvefi og veseni, nei, nei, ekkert svo miklu veseni :)
Þarf samt að gera helling!!!

Sunday, December 14, 2008

4 dagar í heimkomu:)

Friday, December 05, 2008

Myndir

Þá eru komin 2 ný albúm á barnalandssíðuna síðan ég tilkynnti um þetta síðast. Mamman er að standa sig nokkuð vel í stykkinu. Njótið vel.

Monday, December 01, 2008

Gleðilega aðventu

Þá er aðventan gengin í garð og aðventukransinn tilbúinn. Var að leggja lokahönd á þessar örfáu skreytingar sem prýða þetta heimili. Ákvað að hafa hlutina einfalda (við eigum nefnilega næstum ekkert jólaskraut) og bara föndra nokkrar skreytingar: eina kertaskreytingu með svona kerti sem telur niður dagana og svo aðventukransinn, auk þess sem ég keypti 3 pínulitlar jólastjörnur. Erum með smá jólatré með seríu fyrir utan útidyrnar og svo keyptum við 2 svona ker fyrir kerti sem eru líka við sitt hvora útidyrnar líka. Einfalt en kósý :)

Ég er ennþá í veikindaleyfi og mun það vera komnar rétt tæpar 3 vikur núna. Vona samt að ég skreppi bráðum almennilega saman, því annars kemst ég ekki heim um jólin. Ég má nefnilega ekki ferðast erlendis á meðan ég er í veikindaleyfi. Gaman að því. Og koma svo: allir að biðja :)

Annars var mér bannað að krosslegja lappirnar eða standa skakkt á nokkurn hátt, alla vega svona næstu 10-20 árin. Það er ekkert smá erfitt að fylgja þessari skipun þar sem ég hef það fyrir vana að krossleggja lappirnar allan daginn virðist vera. Mæli með því gott fólk að fylgja þessari skipun þó hún sé hundleiðinleg. Þá þurfið þið ekki að lenda í þeirri leiðinlegri reynslu að fá skakkan líkama. Ekki gaman þegar sjúkraþjálfarinn reynir að rétta mann við...!