Thursday, December 16, 2004


Við systkynin í sumar Posted by Hello

Saturday, December 11, 2004

Innlit

Man hvað er gott þegar maður er búinn í prófi. Það er samt ótrúlegt hvað er hægt að mikla próflestrinum fyrir sér og síðan, þegar maður er að lesa uppgötvar maður hversu skemmtilegt efnið er sem maður var á of miklu spani til að geta notið þess að lesa.

Já, ég var að hugsa um að leyfa lesendum að skyggnast inn í skemmtilega lestrarefnið mitt. Hér er ljóð eftir kínverskan höfund sem heitir Po Chu-i og var uppi 772-846. Hann skrifaði oft um stemningar eða svona móment. Þetta ljóð er einmitt samið árið 831.

RISING LATE AND PLAYING WITH A-TS'UI, AGED TWO

All the morning I have lain snugly in bed;
Now at dusk I rise with many yawns.
My warm stove is quick to get ablaze;
At the cold mirror I am slow in doing my hair.
With melted snow I boil fragrant tea;
Seasoned with curds I cook a milk-pudding.
At my sloth and greed there is no one but me to laugh;
My cheerful vigour none but myself knows.
The taste of my wine is mild and works no poison;
The notes of my lute are soft and bring no sadness.
To the Three Joys in the book of Mencius
I have added the fourth of playing with my baby-boy.

Annars hef ég verið að lesa ljóð um ýmislegt, allt frá fóstureðingu í fjallgöngu. Mjög spennandi.

Jón kom heim í nótt. Jejj!! Ýkt gaman. Hann er orðinn eitthvað svo þrekinn og massaður. En, samt sami "gamli" Jón.

Jæja, segi þetta gott í bili :)

Wednesday, December 08, 2004

Við eigum afmæli í dag :)

Jæja, ákvað að taka mér smá hlé frá próflestrinum og reyna að slefa mig upp í tíu blogg fyrir jól (skylda fyrir skólann). Það er gaman að segja frá því að við Kiddi eigum þriggja mánaða afmæli í dag, þ.e.a.s. í kvöld. Þrír æðislegir mánuðir. Styrmir segir að það sé allt honum að þakka, þar sem hann var síðasti maðurinn sem sá okkur áður en við byrjuðum saman :) Ég veit ekki, kannski er hann Amor í dulagerfi...?!

Annars hlakka ég mikið til föstudagskvöldsins þar sem hinn óviðjafnanlegi bróðir minn mun þá snúa aftur frá landi engilsaxneskra manna. Geðveikt gaman!!

Ég er að velta fyrir mér hversu mikið ég ætti að sluxa í kvöld. Á ég kannski bara að byrja núna, það væri góð hugmynd, hmm, kannski ekki. Djúpar pælingar ekki satt?! Ja, this is as deep as it goes people!

Jæja, mission accomplished; back to work.