Wednesday, November 26, 2008

Stundum er gott að blogga um það...

Ég var að koma heim eftir stuttan göngutúr. Það er nú ekki oft sem ég fer ein út að labba og get labbað á mínum hraða. Ég fór út í morgun og skilaði GJ í gestapössun. Þetta er annar dagurinn hans í gestapössun og hann því ekki alveg sáttur, því nú veit hann hvað er að gerast. Þetta er nú heldur ekkert auðvelt fyrir okkur foreldrana, þar sem við erum nú ekki mjög vön því að hann fari í pössun.

Konan sem hann er hjá er samt sú sem ég hef sett efst á "gæðalistanum" í huganum mínum yfir dagmömmunum sem vinna með mér. Hún er samt ekki sú sem er skráð sem gestadagmamman hans, en þar sem allar hinar eru með hendurnar fullar eins og er, þá fékk hann hana. Ætli Guð sé eitthvað með puttann í þessu? Ég kýs að líta svo á. Hún er nefnilega ekki bara frábær dagmamma sem elskar börn og kemur fram við þau af mikilli virðingu, heldur er hún kristin líka, og það er bara eitthvað við það sem maður getur ekki alveg útskýrt en sem ég met mikils.

Ástæðan fyrir þessu öllu saman er nú að ég er sjálf í veikindafríi af því að ég fór eitthvað í bakinu, eða rifbeinunum. Veit ekki alveg hvað gerðist, en það var bara eins og eitthvað brast og ég hef ekki getað unnið síðan. Ég hef farið til sjúkraþjálfara (á einmitt tíma í dag) og svo fer ég til læknis í dag. Frekar seint, ég veit, en það sögðu allir sem við töluðum við að ég þyrfti alls ekki að fara til læknis, bara til sjúkraþjálfara. Svo kemur náttúrlega í ljós, eins og alltaf, að það er náttúrlega nauðsynlegt að hafa þetta skráð niður hjá lækni til að allt sé í lagi á pappírum. Þurfti síðan að bíða í viku eftir tíma. Skrýtið að yfirmenn manns skuli ekki bara vilja segja manni hlutina eins og þeir eru. Það eina sem sagt er er að maður eigi ekki að halda á börnunum sem maður passar...! Svona er nú það. Þau eiga sem sagt að klifra upp og niður skiptiborðið, vagninn og helst stólana líka, þó þeir séu ekki allir þannig gerðir að það sé hægt. Svo á ég bara að setjast á gólfið og halda á þeim þar. Þar hafið þið það. Ég á sem sagt aldrei að lyfta börnunum. Þetta hljómar náttúrlega allt mjög skynsamlega, en ég veit ekki um neina dagmömmu sem lyftir ekki börnunum og heldur á þeim við hinar ýmsu aðstæður, eins og til dæmis þegar þau gráta eða bara til að knúsa þau. Bakið mitt fór ss. þegar ég var að knúsa barn. Já, það er nú ekki öll vitleysan eins.

Vona samt að þetta fari allt að lagast bráðum. Erum búin að búa til smá konfekt á þessu heimili. Svo eru það skreytingarnar sem bíða og loks piparkökubaksturinn :) Nú eru líka bara 3 vikur í að við komum heim. Jejj :) Margt að hlakka til.

Tuesday, November 11, 2008

Jæja, síminn er fundinn, hafði gleymt honum inn í skáp og þar sem hringingin mín er frekar lágt stillt, þá gat ég ekki heyrt í símanum þegar ég reyndi að hringja í hann. Svona er nú það. Það er nefnilega eiginlega alltaf dimmt inni hjá okkur þegar ég þarf að fara í skápinn, þannig að það var ekki fyrr en ég fór að reyna að muna hvað ég hafði nú gert daginn sem ég týndi honum sem ég mundi allt í einu eftir þessum möguleika þar sem ég lá og ætlaði að fara að sofa. Svona getur maður orðið kalkaður með aldrinum. Jahér segi ég nú bara.

Helgin leið allt of hratt eins og venjulega, enda vorum við að gera dáltið margt og þá líður tíminn líka. Það var fínt að fara til Silkiborgar í heimsókn til langömmu og langafa Gunnars Jakobs, en þau eru nú orðin háöldruð og þá finnst manni enn mikilvægara að heimsækja þau reglulega. Maður veit jú ekki hversu langt þau eiga eftir.

Jæja, nenni ekki að blogga meir í bili. Þetta er svo timafrekt :)

Friday, November 07, 2008

Helgin komin

Helgin er komin sem er bara yndislegt. Planið er að slaka á, borða góðan mat, fara í kirkju og heimsækja gömlu hjónin norður í Silkeborg.

Við erum nú samt farin að versla eins sparsamlega og hægt er í matinn og ekkert keypt sem er óþarfa lúxus. Svona er bara lífið í dag og ekkert við því að gera.

Annars finnst mér ekkert skemmilegra þessa dagana en að hugsa um framtíðina og hvernig hún gæti litið út. Það eru margir möguleikar fyrir hendi og gaman að velta hlutum fyrir sér og láta sér dreyma :) Ekki það að nútíminn sé ekki nægilega góður, það er bara ekki eins spennandi að velta nútímanum fyrir sér þar sem ég veit hver staðan er núna.

Ég týndi símanum mínum í gær og hef ekki enn fundið hann. Man!! Ég vona bara að ég hafi ekki hent honum í ruslið eða eitthvað álíka gáfulegt...

Monday, November 03, 2008

Nóvember

Það er kominn nóvember...Jejjj!! Það þýðir að fer að koma desember...jejj!

Sit hérna annars klukkan 7 að morgni reiðubúin fyrir hugsanlega símtöl um gestabörn (koma væntanlega ekki upp úr þessu). Er búin að vera með endalausan hósta frá því fyrir helgina en er ákveðin í því að hringja mig ekki inn lasna. Ýmsar skýringar á því sem ég nenni ekki að fara nánar út í.