Ég um mig...ég... mitt...
Jæja, þá er bara kominn oktober og tíminn flýgur. Ég var beðin vinsamlegast um að blogga eitthvað um það sem ég er að gera í lífinu (fólk in the átlænds jú nó). Já, það er bara ekkert mál, alltaf gaman að rausa um sjálfan sig :)
Hm... hvar á ég að byrja... jú, ég er að fara í Vindáshlíð í dag og verð þar um helgina fyrir þá sem vilja hitta mig. Annars er náttúrlega mikil synd að missa af þessu móti (Haustmót fyrir alla)! Mér skilst að Inga (systir Margrétar Ingu) hafi sent nokkur sms til að mæla með þessum norska ræðumanni sem á að tala. Hann á víst að vera alveg frábær. Svo þið skuluð endilega mæta. Við ætlum líka að hafa lofgjörðarstundir, fara í brennó og spjalla saman og drekka te...eða bara drekka eitthvað annað fyrir þá sem eru ekki svo menningarlegir ;) Annars munum við Heiðrún skreppa í bæinn á kóræfingu á laugardaginn, sem minnir mig á það að Gospelkórinn ætlar að gefa út bæði CD og DVD af tónleikunum sem voru haldnir í Háskólabíói í fyrra, þannig að allir að kaupa og þá helst hjá mér :) Það er tilboð ef fólk kaupir bæði. Þetta kemur út u.þ.b. um miðjan nóv og við erum að reyna að selja fyrirfram, svo það væri gott ef fólk hefði samband.
Nóg af sölumennskunni!! Mér finnst alveg hrikalega leiðinlegt að selja! En, svona er þetta, sometimes u just gotta do whatcha gotta do!
Já, svo er ég u.þ.b. að ná mér á strik í skólanum.. jejj! Ég ákvað að segja mig úr nokkrum fögum þannig að nú er ég í fullri töflu.
Hei, svo er ég byrjuð í fimleikum, getið þið ímyndað ykkur, ha, ha! En þetta er svaka gaman! Mæli með því :)
Nóg af blaðri í bili. C ya'll soon :)