Mamma a leiðinni
Af hverju get ég ekki notað íslenska stafi í titilreitnum?!
Mamma hringdi í mig sl. laugardag og tilkynnti mér að hún væri búin að kaupa miða hingað:) Gaman! Hún kemur ss. næsta laugardag og verður í viku. Pabbi kemur hugsanlega í nokkra daga. Hann er bara svo svakalega bissí. Svo kemur Heiðrún í byrjun nóvember, svo komum við heim í desember. Jahér, það er nú ekkert voðalega erfitt að vera í útlöndum þegar málin eru svona.
Við vorum að kaupa okkur alveg voðalega glæsilega uppþvottavél. Vatn hér er svakalega dýrt, en maður þarf bæði að borga fyrir vatnið sem kemur inn og vatnið sem fer út, þannig að það borgar sig eiginlega að eiga uppþvottavél, því það fer svo mikið vatn til spillis þegar maður vaskar upp. Vatnið hefur, er og mun alltaf vera það besta við Ísland! Ég þarf að sjóða vatnið hér til að geta drukkið það. Svona er maður góðu vanur. Danir halda samt að þeir séu með hreinasta og besta vatn í heimi. Það er svo mikið kalk í því að allt verður hvítt. En... veðrið er samt betra hér, og húsið mitt og garðurinn minn og rósirnar mínar :) Geðveikt gaman.
Kiddi þurfti að mæta í herinn í dag. Pælið í því. Hann þarf samt ekki að taka út herskylduna sína núna, því hann er í námi, en hann þurfti samt að mæta í viðtal. Bizarro!
Annars erum við dálítið kaupóð þessa dagana. (Kiddi er samt sá sem á mestu sökina). Við keyptum fitnesshjól handa mér, það var að vísu ferlega ódýrt og ráðlagt af Sonju sjúkraþjálfara. Síðan var Kiddi að kaupa eitthvað fáránlega flott sjónvarp handa okkur. Hann komst að því að það væri ódýrast í Þýskalandi, þannig að hann pantaði það þaðan. Það kemur eftir 2 daga. Jahér. Okkar sjónvarp sem við fengum gefins er svo gamalt að það tekur ekki einu sinni inn allar sjónvarpsstövarnar sem er í þeim pakka sem við borgum fyrir. Manni líður hálf illa að vera að kaupa svona margt. En, ég hugsa að það verði nú ekki keypt neitt mikið meira af svona stórum hlutum á næstunni.
Anyways, það er rigning hér í dag og barnið mitt sefur og sefur. Klukkan er nú bara hálf ellefu, en það er óvenjulegt hvað hann er búinn að sofa mikið í dag. Hann var vakandi óvenjulega snemma í morgun, en þetta er samt skrýtið. Hann er greinilega að vaxa. Ég veit samt varla hvað ég á að gera við sjálfa mig á meðan.